
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra með fulltrúum stýrihóps um Framtíðarmöguleika Breiðafjarðar, Breiðafjarðarnefndar, Sambands sveitarfélaga á Vesturlandi, Fjórðungssambands Vestfjarða, Náttúrufræðistofnunar, Náttúrustofu Vesturlands, bæjarstjóra Stykkishólmsbæjar, ásamt fleirum. Ljósm. Stjórnarráðið
Verndaráætlun Flateyjar staðfest af ráðherra
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur staðfest stjórnunar- og verndaráætlun fyrir friðlandið Flatey í Breiðafirði. Flatey var friðlýst sem friðland árið 1975, en árið 2021 var friðlýsingin endurskoðuð og friðlandið stækkað. Markmið friðlýsingarinnar er að vernda sérstætt og fjölbreytt lífríki svæðisins og búsvæði fugla, einkum varpsvæði fágætra fuglategunda. Friðlandið hefur hátt vísinda- og fræðslugildi og er vel þekkt á meðal vísindamanna og fuglaáhugafólks. Friðlýsingunni er einnig ætlað að tryggja rannsóknir og vöktun á lífríki svæðisins, með áherslu á búsvæði og afkomu varpfugla og að tryggja fræðslu um fuglalífið í eynni og nágrenni.