Fréttir

true

Samþykkja að hefja formlegar viðræður um sameiningu

Meirihluti sveitarstjórnar Skorradalshrepps hefur fyrir sitt leyti samþykkt að ganga til formlegra viðræðna um sameiningu við Borgarbyggð. Var það gert á fundi hreppsnefndar 4. júlí síðastlinn. Gert er ráð fyrir að íbúakosning um sameiningu fari fram næsta vor. Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 13. júní síðastliðinn fyrir sitt leyti að hefja sameiningarviðræður. Á fundi…Lesa meira

true

Nóttin gekk vel þrátt fyrir mikinn mannfjölda

Bæjarhátíðinni Írskum dögum á Akranesi lýkur í dag. Í gær var mikið um að vera í bænum. Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að líklega hafi gestir á Lopapeysunni í gærkveldi verið um fimm þúsund. Nokkuð fleiri voru á Brekkusöng á Þyrlupallinum fyrr um kvöldið, en meðfylgjandi myndir eru þaðan.  Annríki var hjá lögreglu…Lesa meira

true

Stórsigur Skagamanna gegn HK

Skagamenn unnu sannkallaðan stórsigur 8:0 í Bestu deild karla þegar liðið tók á móti HK á Elkem vellinum á laugardaginn. Viktor Jónsson skoraði fjögur markanna í leiknum og er nú markahæstur í Bestu deildinni með 12 mörk. Skagamenn hafa verið á góðu skriði í deildinni að undanförnu og gáfu ekkert eftir gegn HK og tónninn…Lesa meira

true

Góður útisigur Skagakvenna gegn Grindavík

Meistaraflokkur kvenna gerði góða ferð í Safamýrina á föstudagskvöldið þegar liðið vann Grindvíkinga 2:1 á Stakkavíkurvelli. Skagakonur byrjuðu leikinn mjög vel og náðu forystunni strax á 10. mínútu og var þar að verki Erla Karitas Jóhannesdóttir og leiddu þær með því marki í hálfleik. Á 56. mínútu leiksins tvöfölduðu þær forystu sína og komust í…Lesa meira

true

Fimmtán ára stúlka náði Albatross á Garðavelli

Kylfingurinn Viktoría Vala Hrafnsdóttir úr golfklúbbnum Leyni á Akranesi gerði sér lítið fyrir á Landsbankamóti á miðvikudaginn að fara par fimm holu á tveimur höggum. Fjórða braut vallarins er alls 359 metra löng af rauðum teig. Eftir frábært upphafshögg átti Viktoría Vala um 140 metra eftir sem hún sló með 6-járni í nokkrum mótvindi –…Lesa meira

true

Fara til aðstoðar við leit á Skálafellsjökli

Björgunarsveitir af vestanverðu landinu voru nú fyrir nokkrum mínútum kallaðar út til aðstoðar við leit sem nú fer fram að týndum göngumanni á Skálafellsjökli, sunnanvert á Vatnajökli. Sérstaklega er kallað eftir aðstoð fjallabjörgunarfólks, dróna, leitarhunda og aðgerðastjórnenda. Nálægar björgunarsveitir á suðausturlandi eru byrjaðar leit og þá er þyrla Landhelgisgæslunnar einnig á flugi.Lesa meira

true

Víkingur enn ósigraður

Víkingur Ólafsvík er enn ósigraður í 2. deildinni, en liðið mætti Kormáki/Hvöt á miðvikudaginn. Leikurinn fór fram á Blönduósvelli og lauk með 1-1 jafntefli. Það voru gestirnir frá Ólafsvík sem náðu forystunni á 43. mínútu leiksins með marki frá Luis Romero Jorge. Þannig var staðan þar til heimamenn jöfnuðu leikinn á 78. mínútu með marki…Lesa meira

true

Dagskrá Írskra daga komin á fullt

Bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi hófst fyrr í vikunni. Eftir því sem líður nær helgi þéttist dagskráin, eins og sjá má í auglýsingum meðal annars í Skessuhorni. Blaðamaður Skessuhorns skellti sér síðdegis í gær í myndarúnt og tók nokkrar myndir. Veðrið var með ágætum og stemningin góð.Lesa meira

true

Nýtt iðnaðarsvæði skipulagt á Hvanneyri

Borgarbyggð áformar skipulag 23 atvinnulóða á nýju skipulögðu svæði við Melabraut á Hvanneyri, en það er svæðið nyrst og austast í útjaðri þéttbýlis á staðnum. Hið skipulagða svæði markast af beitilandi Staðarhóls til vesturs, Melabraut til norðurs, Grímarsstaðavegi til austurs og beitilandi Hvanneyrar til suðurs. Hið skipulagða svæði er 5,8 hektarar. Á svæðinu verður lögð…Lesa meira

true

Útilegukort gildir ekki um helgina og aldurstakmark er 23 ár

Frá því er greint á vefsíðu Akraneskaupstaðar að um þessa helgi, þegar Írskir dagar fara fram, að gert er það frávik frá reglum að Útilegukortið gildir ekki þessa einu helgi á tjaldsvæðinu í Kalmansvík. Er það eina undantekning ársins hvað þetta snertir. Þá er jafnframt tekið fram að aldurstakmark til að fá að nýta tjaldstæðið…Lesa meira