Viktor Jónsson skoraði þrjú mörk á aðeins ellefu mínútna kafla í síðari hálfleik og alls fjögur mörk í leiknum. Ljósm. vaks

Stórsigur Skagamanna gegn HK

Skagamenn unnu sannkallaðan stórsigur 8:0 í Bestu deild karla þegar liðið tók á móti HK á Elkem vellinum á laugardaginn. Viktor Jónsson skoraði fjögur markanna í leiknum og er nú markahæstur í Bestu deildinni með 12 mörk. Skagamenn hafa verið á góðu skriði í deildinni að undanförnu og gáfu ekkert eftir gegn HK og tónninn var gefinn með fyrsta markinu eftir aðeins fimm mínútur og völtuðu síðan í framhaldinu yfir gestina. Auk markanna átta þá bjargaði tréverkið HK tvívegis í síðari hálfleik.

Stórsigur Skagamanna gegn HK - Skessuhorn