Áætlað er að um átta þúsund manns hafi mætt á brekkusönginn á Þyrlupalinum í gær. Ljóms. mm

Nóttin gekk vel þrátt fyrir mikinn mannfjölda

Bæjarhátíðinni Írskum dögum á Akranesi lýkur í dag. Í gær var mikið um að vera í bænum. Í dagbók Lögreglunnar á Vesturlandi kemur fram að líklega hafi gestir á Lopapeysunni í gærkveldi verið um fimm þúsund. Nokkuð fleiri voru á Brekkusöng á Þyrlupallinum fyrr um kvöldið, en meðfylgjandi myndir eru þaðan. 

Nóttin gekk vel þrátt fyrir mikinn mannfjölda - Skessuhorn