Samþykkja að hefja formlegar viðræður um sameiningu

Meirihluti sveitarstjórnar Skorradalshrepps hefur fyrir sitt leyti samþykkt að ganga til formlegra viðræðna um sameiningu við Borgarbyggð. Var það gert á fundi hreppsnefndar 4. júlí síðastlinn. Gert er ráð fyrir að íbúakosning um sameiningu fari fram næsta vor. Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum 13. júní síðastliðinn fyrir sitt leyti að hefja sameiningarviðræður.

Samþykkja að hefja formlegar viðræður um sameiningu - Skessuhorn