Fréttir

true

Minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag

Árlegur alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa er í dag. Að þessu sinni er vakin athygli á þeirri hættu sem getur skapast við að sofna eða dotta undir stýri. Rannsóknir Rannsóknarnefndar samgönguslysa hafa sýnt að svefn og þreyta eru meðal helstu orsaka banaslysa í umferðinni. Minningarathafnir verða haldnar um allt land af þessu tilefni þar sem…Lesa meira

true

Einar í níunda sæti á HM í kraftlyftingum

Heimsmeistaramótið í kraftlyftingum með búnaði stóð yfir í síðustu viku í Njarðvík. Sex Íslendingar kepptu á mótinu og freistuðu þess að vinna sér keppnisrétt á World Games á næsta ári. Samhliða mótinu er Special Olympics HM haldið og þar átti Ísland sjö fulltrúa. Einar Örn Guðnason frá Kraftlyftingafélagi Akraness keppti á mótinu í -120 kg…Lesa meira

true

Skagamenn í þriðja sæti eftir sigur á Breiðabliki

ÍA og Breiðablik mættust í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Fyrir leik voru bæði lið með átta stig eftir sex umferðir og liðið sem næði sigri gat komist upp í þriðja sætið, á eftir liðum Ármanns og Sindra. Heimamenn voru aðeins sterkari fyrstu mínúturnar og staðan…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Snæfell í Vesturlandsslag

Skallagrímur og Snæfell áttust við í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var viðureignin í Fjósinu í Borgarnesi. Gengi liðanna í síðustu leikjum var alls ekki gott, Skallarnir höfðu tapað þremur leikjum í röð og Snæfell fimm og ljóst að það myndi breytast eftir þessa rimmu. Mikil barátta var á milli liðanna í…Lesa meira

true

Leikskólinn Hraunborg flytur á Varmaland

Mikil gleði ríkir í grunnskóla Borgarfjarðar á Varmalandi eftir að leikskólinn Hraunborg flutti starfsemi sína þangað en leikskólinn var áður staðsettur á Bifröst. Aðstaðan er til fyrirmyndar eftir að verktakar luku störfum. Leikskólinn er kærkomin viðbót við námsumhverfi grunnskólans og hefur þegar aukið fjölbreytileika og líf í skólanum, sérstaklega á kaffistofu starfsmanna. Nemendur í grunnskólanum…Lesa meira

true

Kvenfélög hafa gefið 165 milljónir á þremur árum

Kvenfélög landsins gefa á hverju ári tugmilljónir króna til hinna ýmsu menningar- og líknarmála, auk annarra samfélagsverkefna. Á landsþingi Kvenfélagasambands Íslands (KÍ), sem fram fór á Ísafirði í október, kom fram að á árunum 2021-23, gáfu kvenfélög innan KÍ alls 165.017.547 krónur til samfélagsins og munar um minna. Alls mættu 220 kvenfélagskonur, víðs vegar að…Lesa meira

true

Frostbiter hefst á Akranesi í dag

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin á Akranesi í níunda skiptið um helgina. Hún hefst í dag klukkan 18 á Vesturgötu 48 (gamli Kiwanis salurinn), sem er heimili annars skipuleggjandans, með sýningu á myndinni Clownie & The Satanic Cult. Leikstjóri myndarinnar, Bjarni Gautur, situr svo fyrir svörum eftir sýningu myndarinnar. Eftir það eða klukkan 20 um kvöldið…Lesa meira

true

Heiðarskóli tók þátt í Degi gegn einelti

Föstudaginn 8. nóvember var baráttudagur gegn einelti og tóku nemendur Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þátt í honum. Í tilefni dagsins var tekin hjartalaga hópmynd af flestum nemendum skólans. Auk þess skrifaði hver og einn nemandi og starfsmaður fallega hvatningu á hjartamiða um góð samskipti og fleira til. Miðarnir voru síðan hengdir upp á vegg og vöktu…Lesa meira

true

Nemandi við LbhÍ verður borgarstjóri Þórshafnar í Færeyjum

Í kjölfar sveitarstjórnakosninga í Færeyjum hefur nýr borgarstjórnarmeirihluti þriggja flokka tekið við í Þórshöfn. Flokkarnir þrír segja í fréttatilkynningu, sem send var út eftir miðnætti, að Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og Borgaralistinn hafi samþykkt að mynda meirihluta í borgarstjórn Þórshafnar. Elsa Berg er fulltrúi Frjálslynda flokksins og tekur hún nú við starfi borgarstjóra í Þórshöfn. Elsa…Lesa meira

true

Snjallmælavæða dreifikerfi vatns og rafmagns

Starfsfólk Veitna er nú langt komið með að skipta út gömlum orkumælum fyrir rafmagn og heitt vatn fyrir nýja snjallmæla. Verkefnið hefur m.a. verið í gangi á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Nú er m.a. unnið við mælaskipti á Akranesi og áætlað að því verkefni ljúki í byrjun næsta árs. Veitur áætla að allir viðskiptavinir verði komnir…Lesa meira