Fréttir

true

Kvenfélög hafa gefið 165 milljónir á þremur árum

Kvenfélög landsins gefa á hverju ári tugmilljónir króna til hinna ýmsu menningar- og líknarmála, auk annarra samfélagsverkefna. Á landsþingi Kvenfélagasambands Íslands (KÍ), sem fram fór á Ísafirði í október, kom fram að á árunum 2021-23, gáfu kvenfélög innan KÍ alls 165.017.547 krónur til samfélagsins og munar um minna. Alls mættu 220 kvenfélagskonur, víðs vegar að…Lesa meira

true

Frostbiter hefst á Akranesi í dag

Hryllingsmyndahátíðin Frostbiter verður haldin á Akranesi í níunda skiptið um helgina. Hún hefst í dag klukkan 18 á Vesturgötu 48 (gamli Kiwanis salurinn), sem er heimili annars skipuleggjandans, með sýningu á myndinni Clownie & The Satanic Cult. Leikstjóri myndarinnar, Bjarni Gautur, situr svo fyrir svörum eftir sýningu myndarinnar. Eftir það eða klukkan 20 um kvöldið…Lesa meira

true

Heiðarskóli tók þátt í Degi gegn einelti

Föstudaginn 8. nóvember var baráttudagur gegn einelti og tóku nemendur Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit þátt í honum. Í tilefni dagsins var tekin hjartalaga hópmynd af flestum nemendum skólans. Auk þess skrifaði hver og einn nemandi og starfsmaður fallega hvatningu á hjartamiða um góð samskipti og fleira til. Miðarnir voru síðan hengdir upp á vegg og vöktu…Lesa meira

true

Nemandi við LbhÍ verður borgarstjóri Þórshafnar í Færeyjum

Í kjölfar sveitarstjórnakosninga í Færeyjum hefur nýr borgarstjórnarmeirihluti þriggja flokka tekið við í Þórshöfn. Flokkarnir þrír segja í fréttatilkynningu, sem send var út eftir miðnætti, að Frjálslyndi flokkurinn, Samfylkingin og Borgaralistinn hafi samþykkt að mynda meirihluta í borgarstjórn Þórshafnar. Elsa Berg er fulltrúi Frjálslynda flokksins og tekur hún nú við starfi borgarstjóra í Þórshöfn. Elsa…Lesa meira

true

Snjallmælavæða dreifikerfi vatns og rafmagns

Starfsfólk Veitna er nú langt komið með að skipta út gömlum orkumælum fyrir rafmagn og heitt vatn fyrir nýja snjallmæla. Verkefnið hefur m.a. verið í gangi á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Nú er m.a. unnið við mælaskipti á Akranesi og áætlað að því verkefni ljúki í byrjun næsta árs. Veitur áætla að allir viðskiptavinir verði komnir…Lesa meira

true

Hálka og hvassviðri og því rétt að aka með gát

Gular og appelsínugular veðurviðvaranir Veðurstofunnar eru í gildi fyrir mestallt landið í dag. Á Umferðin.is kemur fram að hálka eða hálkublettir eru á flestum leiðum í landshlutanum og eitthvað um éljagang. Á Kjalarnesi þurfa ökumenn að gera ráð fyrir að grjót og leðja geti verið á veginum eftir sjógang. Á Fróðárheiði á Snæfellsnesi er óveður…Lesa meira

true

Landsbankamót Sundfélags Akraness

Í gær fór fram Landsbankamót Sundfélags Akraness í Bjarnalaug. Þátttakendur stóðu sig með stakri prýði en alls tóku 45 krakkar þátt á mótinu á aldrinum 6-12 ára. Keppt var í þremur sundgreinum, bringusundi, baksundi og skriðsundi. Þau Einar Margeir Ágústssonog Sunna Arnfinnsdóttir, sem æfa með afrekshópi SA, sýndu yngri krökkunum sund á mótinu en þau…Lesa meira

true

Stytta vinnuvikuna á skrifstofu sveitarfélagsins

Á fundi sveitarstjórnar Hvalfjarðarsveitar 13. nóvember sl. lagði Andrea Ýr Arnarsdóttir oddviti fram tillögu þess efnis að skrifstofa sveitarfélagsins loki kl. 12 á föstudögum í því skyni að uppfylla nýgerða kjarasamninga sem kveða á um 36 stunda vinnuviku. Breytingin tekur gildi 1. janúar nk. en fram til þess tíma mun starfsfólk skrifstofu stytta hvern dag…Lesa meira

true

Framkvæmdir við höfnina í Ólafsvík

Þessa dagana standa yfir dýpkunarframkvæmdir fyrir framan nýju trébryggjuna við höfnina í Ólafsvík. Til að auðveldara verði fyrir verktakann að athafna sig er búið er að keyra út fyllingu í höfnina. Þar er svæði sem þarf að dýpka þannig að full not verði á bryggjunni og verður fleygað úr klöpp í botni hafnarinnar svo að…Lesa meira

true

Ragnar og Ásgeir bæta flotann

Flutningafyrirtækið Ragnar & Ásgeir ehf í Grundarfirði hefur fjárfest í tveimur nýjum Volvo flutningabílum í flotann hjá sér. Föstudaginn 8. nóvember mætti flokkur frá Volvo í Svíþjóð og frá Velti sem er Volvo atvinnutækjasvið Brimborgar. Bílarnir eru hinir glæsilegustu og af nýjustu gerð Volvo FH16 með 780 hestafla mótorum. Bílarnir fóru strax í notkun enda…Lesa meira