
Landsbankamót Sundfélags Akraness
Í gær fór fram Landsbankamót Sundfélags Akraness í Bjarnalaug. Þátttakendur stóðu sig með stakri prýði en alls tóku 45 krakkar þátt á mótinu á aldrinum 6-12 ára. Keppt var í þremur sundgreinum, bringusundi, baksundi og skriðsundi. Þau Einar Margeir Ágústssonog Sunna Arnfinnsdóttir, sem æfa með afrekshópi SA, sýndu yngri krökkunum sund á mótinu en þau unnu til fjölda verðlauna á nýafstöðnu Íslandsmeistaramóti í sundi sem fram fór um liðna helgi.