
Berglind Vésteinsdóttir á Sauðafelli í Miðdölum sendi Skessuhorni þessar skemmtilegu myndir sem hún tók síðdegis í gær, 8. janúar. Vindskafin ský sveipuð duluð grúfðu yfir fólki og fjöllum í hálfrökkrinu.Lesa meira

Berglind Vésteinsdóttir á Sauðafelli í Miðdölum sendi Skessuhorni þessar skemmtilegu myndir sem hún tók síðdegis í gær, 8. janúar. Vindskafin ský sveipuð duluð grúfðu yfir fólki og fjöllum í hálfrökkrinu.Lesa meira

Innlend greiðslukortavelta í desember nam 100 milljörðum króna og hækkaði um 0,4% á milli ára, en í desember 2022 nam kortaveltan 99,67 milljörðum. Rannsóknasetur verslunarinnar tekur saman upplýsingar um neyslu landsmanna. Greiðslukortavelta í verslun nam 62,7 milljörðum króna í desember og hækkaði um 4% á milli ára. Erlend kortavelta drógst saman um 9,7% og nam…Lesa meira

Seinni hlutann í janúar verður fyrirtækið Golfheimur opnað á Smiðjuvöllum 17 á Akranesi. Þar verður aðstaða með tveimur golfhermum af nýjustu gerð og fjórum píluspjöldum. Eigendur Golfheims eru þau Valdís Þóra Jónsdóttir og Karl Ómar Karlsson golfkennarar sem eru með áralanga reynslu í þeim fræðum. Blaðamaður Skessuhorns kíkti í síðustu viku í aðstöðuna þar sem…Lesa meira

Í morgun kom hópurinn saman sem kennir sig við Góðar fréttir af Snæfellsnesi. Fundað var í ráðhúsinu í Grundarfirði. Þetta var vinnufundur og stilltir saman strengir fyrir nýtt ár. „Við erum að taka forskot á sæluna í byrjun árs, en það kemur alltaf eitthvað skemmtilegt fram á þessum fundum okkar,“ segir Hlédís Sveinsdóttir verkefnastjóri í…Lesa meira

Vegna hættu á slitlagsskemmdum, hefur Vegagerðin ákveðið að fella úr gildi viðauki 1 og verður ásþungi takmarkaður við 10 tonn á Akrafjallsvegi 51 frá Urriðaá að Berjadalsá. Takmörkun gildir frá miðvikudeginum 10. janúar kl. 8:00.Lesa meira

Borgnesingurinn Gunnar Smári Jónbjörnsson er um þessar mundir að takast á við erfitt verkefni og er að jafna sig eftir óvænta og mjög erfiða hjartaaðgerð. Næsta laugardag verður haldin æfing í Ægir Gym á Akranesi og Metabolic Borgarnesi til styrktar Gunnari Smára. Í tilkynningu á FB síðu viðburðarins segir að æfingin verði haldin laugardaginn 13.…Lesa meira

Fram kemur í frétt á vef Grundaskóla á Akranesi að á mánudagsmorguninn hafi hreinlega verið umferðarstífla við inngang skólans við Víkurbraut því allt of mörgum börnum var skutlað í skólann þennan dag. „Meðan hlýtt er í veðri og greiðar gönguleiðir í allar áttir er hreint út sagt engin afsökun fyrir neinn að koma ekki labbandi.…Lesa meira

Æfingahelgi framtíðarhóps Sundsambands Íslands fór fram um helgina í Laugardalnum. Fram kemur í fréttatilkynningu frá SSÍ að markmiðið með æfingahelgum Framtíðarhóps er að fræða og hvetja upprennandi sundfólk ásamt því að styrkja liðsheildina. „Við vonum að þessar æfingahelgar virki hvetjandi, auki metnað hjá sundfólki til að ná árangri og að góð vinabönd myndist óháð félögum…Lesa meira

Íslenskir neytendur nýttu ekki Singles Day til þess að kaupa jólagjafir í ár, en neysla á Singles Day deginum hrundi miðað við ný gögn frá Rannsóknasetri verslunarinnar. Netverslun á Singles Day dróst saman um tæp 40% á milli ára. Þá var samdrátturinn tæp 16% í verslun. „Líkleg skýring fyrir þessu er að Singles Day hitti…Lesa meira

Fyrsta umferð Gettu betur hófst í gærkvöldi í Ríkisútvarpinu með fjórum viðureignum. Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, Fjölbrautaskóli Suðurlands, Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi og Menntaskólinn á Ísafirði komust áfram í næstu umferð keppninnar. Fjölbrautaskólinn við Ármúla laut í lægra haldi fyrir Fjölbrautaskólanum í Breiðholti, 21 – 23. Fjölbrautaskóli Suðurlands vann Borgarholtsskóla, 35 – 15. Fjölbrautaskóli Vesturlands á…Lesa meira