Fréttir

true

Aldan hélt jólamarkað

Aldan, starfsstöð fyrir fólk með skerta starfsgetu í Borgarnesi, hélt jólamarkað í gær, miðvikudaginn 13. desember. Þar var handverk til sölu sem starfsfólk Öldunnar hefur búið til undanfarnar vikur og mánuði. Kerti, kertastjakar, styttur, nammikransar og skartgripir voru m.a. til sölu ásamt því að uppboð var á jólatré sem skreytt var með konfekti. Gestir og…Lesa meira

true

Þrettánda tap Snæfells kom á móti Stjörnunni

Stjarnan og Snæfell áttust við í Subway deild kvenna í körfuknattleik á þriðjudagskvöldið og var leikurinn í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Þremur dögum áður höfðu liðin mæst á sama stað í VÍS bikarnum þar sem Stjörnukonur unnu öruggan 83:50 sigur og ljóst að verkefnið yrði erfitt hjá gestunum úr Stykkishólmi. Fyrsti leikhluti var jafn og spennandi…Lesa meira

true

Meiri fjölgun í Borgarbyggð en á Akranesi

Íbúar á Vesturlandi voru 1. desember síðastliðinn 18.041 og hafði fjölgað um 3,2% frá sama tíma árið 2022. Á Vesturlandi hefur íbúum fjölgað um 555 á árinu. Mest fjölgar í Borgarbyggð þar sem 265 fleiri búa nú en gerðu ári áður. Fjölgað hefur þar um 265 íbúa á árinu, eða 6,5%. Á Akranesi hefur fjölgað…Lesa meira

true

Guðbjörg Bjartey hlaut styrk úr afrekssjóði

Á fundi Fjölskyldu- og frístundanefndar Hvalfjarðarsveitar 7. desember sl. voru teknar fyrir umsóknir í Afreksstyrktarsjóð Hvalfjarðarsveitar en sjóðurinn er ætlaður til þess að styðja við bakið á afreksfólki sem á lögheimili í sveitarfélaginu og hefur skarað fram úr og/eða fengið viðurkenningu fyrir störf/afrek sín á sviði íþrótta. Úthlutað er tvisvar sinnum á ári úr sjóðnum…Lesa meira

true

Færð gæti spillst á fjallvegum með kvöldinu

Vegagerðin varar við krefjandi aðstæðum til aksturs næsta ríflega sólarhringinn vegna veðurs. Það gildir m.a. á akstursleiðinni austur fyrir fjall og eins norður í land og vestur á firði. „Í kvöld hvessir með éljum ofan 100 – 200 metra yfir sjó, ekki síst á Holtavörðuheiði. Á morgun verður síðan hríðarveður og blint frá því fyrir…Lesa meira

true

Segja að tryggja verði næga raforku fyrir heimili og fyrirtæki

Samtök sveitarfélaga á köldum svæðum landsins (SSKS) sendu nýverið inn umsögn til atvinnuveganefndar Alþingis vegna frumvarps um breytinga á raforkulögum. Þar leggja samtökin þunga áherslu á að almenningi á Íslandi, sveitarfélögum og smærri fyrirtækjum, sé tryggður forgangur að raforku til notkunar.  Í umsögn sinni bendir SSKS á að í dag fari um 83% raforku sem…Lesa meira

true

Banaslys á Vesturlandsvegi í gær

Laust fyrir klukkan þrjú í gær varð alvarlegt bílslys á Vesturlandsvegi í Melasveit, ekki fjarri Skipanesi. Þar hafði harður árekstur orðið á milli tveggja bifreiða sem þrír voru í.  Í öðrum bílnum var ökumaður einn á ferð en í hinni bifreiðinni voru tveir. Vegurinn var lokaður það sem eftir lifði dags og fram á kvöldið…Lesa meira

true

Engar rakaskemmdir á Teigaseli

Á fundi skóla- og frístundaráðs Akraneskaupstaðar síðasta miðvikudag var kynnt úttekt verkfræðistofunnar Verkís á húsnæði leikskólans Teigasels við Laugarbraut frá því í nóvember 2023. Í samantekt kom fram að engar rakaskemmdir sáust á byggingarefnum í skoðuninni og sýnataka sýndi engar óeðlilegar niðurstöður. Mjög mikið rykálag var í byggingunni og er bil á milli heraklith einangrunarplatna…Lesa meira

true

Erfið akstursskilyrði og gul viðvörun til morguns

Til klukkan 8 í fyrramálið, föstudag, er gul viðvörun Veðurstofunnar í gildi vegna suðvestan hvassviðris. Á hún við allt vestanvert landið. „Það verður suðvestan 10-18 m/s, en staðbundið 15-23 með dimmum éljum og lélegu skyggni á milli. Erfið akstursskilyrði.“Lesa meira

true

Völdu sér tré fyrir skólann sinn

Síðasta föstudag fóru nemendur 10. bekkjar í Heiðarskóla í Hvalfjarðarsveit í heimsókn í Álfholtsskóg og völdu jólatré fyrir skólann. Reynir Þorsteinsson, formaður Skógræktarfélags Skilmannahrepps, tók á móti hópnum og sýndi krökkunum tré sem kæmu til greina. Þegar rétta tréð fannst sáu krakkarnir um að saga og bera tréð í gegnum skóginn. Fram kemur á heimasíðu…Lesa meira