Björgunarsveitir á ferð. Ljósm. úr safni.

Færð gæti spillst á fjallvegum með kvöldinu

Vegagerðin varar við krefjandi aðstæðum til aksturs næsta ríflega sólarhringinn vegna veðurs. Það gildir m.a. á akstursleiðinni austur fyrir fjall og eins norður í land og vestur á firði. „Í kvöld hvessir með éljum ofan 100 – 200 metra yfir sjó, ekki síst á Holtavörðuheiði. Á morgun verður síðan hríðarveður og blint frá því fyrir hádegi og fram á kvöld, m.a á Hellisheiði.“

Færð gæti spillst á fjallvegum með kvöldinu - Skessuhorn