Banaslys á Vesturlandsvegi í gær

Laust fyrir klukkan þrjú í gær varð alvarlegt bílslys á Vesturlandsvegi í Melasveit, ekki fjarri Skipanesi. Þar hafði harður árekstur orðið á milli tveggja bifreiða sem þrír voru í.  Í öðrum bílnum var ökumaður einn á ferð en í hinni bifreiðinni voru tveir. Vegurinn var lokaður það sem eftir lifði dags og fram á kvöldið og löng bílaröð myndaðist beggja vegna slysstaðarins.

Að sögn Lögreglunnar á Vesturlandi lést ökumaðurinn sem var einn á ferð í bíl sínum. Ökumaður og farþegi úr hinni bifreiðinni voru flutt til Reykjavíkur með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Fjölmennt lið viðbragðsaðila kom að slysinu.

Banaslys á Vesturlandsvegi í gær - Skessuhorn