
Nú er leyfilegt að færa lögheimili í nýtt heilsárshverfi í Húsafelli. Gera má ráð fyrir að hluta fjölgunar íbúa í Borgarbyggð á síðustu 12 mánuðum megi rekja til þess. Ljósm. Elmar Snorrason.
Meiri fjölgun í Borgarbyggð en á Akranesi
Íbúar á Vesturlandi voru 1. desember síðastliðinn 18.041 og hafði fjölgað um 3,2% frá sama tíma árið 2022. Á Vesturlandi hefur íbúum fjölgað um 555 á árinu. Mest fjölgar í Borgarbyggð þar sem 265 fleiri búa nú en gerðu ári áður. Fjölgað hefur þar um 265 íbúa á árinu, eða 6,5%. Á Akranesi hefur fjölgað um 245 íbúa, sem jafngildir 3,1%. Hlutfallslega fjölgaði þó mest í Eyja- og Miklaholtshreppi, eða um 11,6% á tólf mánuðum. Íbúar þar eru nú 125 og og fjölgaði um 13. Einungis í Dalabyggð hefur orðið lítilsháttar fækkun á tímabilinu, en þar fækkaði um tvo íbúa, eru nú 655. Í öðrum sveitarfélögum voru ekki stór stökk í íbúafjölda á árinu.