Fréttir

true

Góður árangur hjá Einari Margeiri á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti

Einar Margeir Ágústsson sundmaður frá Akranesi átti mjög góða helgi á Evrópumeistaramóti fullorðinna í 25m laug sem fram fór um liðna helgi. Þar keppti hann ásamt fimm öðrum sundmönnum frá Íslandi. Í 200m bringusundi gerði Einar Margeir sér lítið fyrir og setti nýtt unglingamet á tímanum 2.12,15, sem er bæting á unglingameti um 2,1 sekúndu.…Lesa meira

true

Hækka frístundastyrk í Snæfellsbæ

Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt að hækka upphæð frístundastyrks fyrir hvert barn í 33 þúsund krónur á ári og víkka aldursbilið í báða enda. Frístundastyrkur var fyrst tekinn upp hjá Snæfellsbæ árið 2019 og hljóðaði þá upp á 20 þúsund krónur á ári og gilti til niðurgreiðslu þátttökugjalda í skipulögðu íþrótta- og tómstundarstarfi barna og unglinga…Lesa meira

true

Verk eftir Erró verður sett upp í Ólafsvík

Snæfellsbær verður 30 ára á næsta ári. Fram kemur í bókun bæjarstjórnar í síðustu viku að í tilefni tímamótanna hafi markaðs- og kynningarfulltrúi sveitarfélagsins verið í samstarfi við samstarfsmenn listamannsins Erró um að setja upp listaverk eftir hann í nágrenni Pakkhússins í Ólafsvík næsta vor. Erró, Guðmundur Guðmundsson, er fæddur í Ólafsvík 19. júlí 1932…Lesa meira

true

Sýndu Litlu stúlkuna með eldspýturnar

Söngleikjadeild Tónlistarskóla Borgarfjarðar sýndi tvær sýningar af Litlu stúlkunni með eldspýturnar í Borgarneskirkju í síðustu viku. Nítján börn tóku þátt í sýningunni sem leikstýrt var af Theodóru Þorsteinsdóttur og Hönnu Ágústu Olgeirsdóttur en Jónína Erna Arnardóttir lék undir á píanó.Lesa meira

true

Ráðgjöf fyrir aðstandendur og fólk með heilabilun

Upplýsinga- og ráðgjafaþjónusta fyrir fólk með heilabilun og aðstandendur þess hefur verið opnuð hjá Alzheimersamtökunum. Þjónustan er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í málefnum eldra fólks: Gott að eldast. Markmið aðgerðarinnar er að auðvelda aðgengi að upplýsingum og ráðgjöf um hvað eina sem varðar heilabilun, svo sem varðandi þjónustu og sérhæfðari ráðgjöf. Alzheimersamtökin hafa um árabil…Lesa meira

true

Hagnaður af rekstri Snæfellsbæjar og engar nýjar lántökur

Fjárhagsáætlun A og B hluta stofnana Snæfellsbæjar fyrir næsta ár var samþykkt samhljóða á bæjarstjórnarfundi síðastliðinn fimmtudag. Fram kemur í bókun bæjarstjórnar frá fundinum að verðbólga þessa árs hafi farið töluvert fram úr spám Hagstofunnar og telur bæjarstjórn því þörf á að mæta þeim kostnaði með gjaldskrárhækkunum. Verðbólgan hefur verið í kringum 9% á árinu…Lesa meira

true

Snæfell úr leik í VÍS bikarnum eftir tap gegn Stjörnunni

Stjarnan og Snæfell mættust í 16-liða úrslitum í VÍS bikar kvenna í körfuknattleik á laugardaginn og var leikurinn í Umhyggjuhöllinni í Garðabæ. Það var ekki hátt stigaskorið í fyrsta leikhluta og eftir fimm mínútna leik var staðan 5:2 fyrir Stjörnunni. Snæfell bætti aðeins við einni körfu eftir það og hafði þá ekki skorað í átta…Lesa meira

true

Jólamarkaður var haldinn í Norska húsinu

Í Stykkishólmi var jólalegt um að litast um helgina en jólamarkaður fór fram í Norska húsinu þar sem ýmsir aðilar seldu handverk og kræsingar. Markaðurinn er haldinn árlega í tvígang fyrir jól en gestir og gangandi gátu litið við og keypt eitthvað fallegt ásamt því að skoða jólasýningu Norska hússins. Jólasýningin í ár ber heitið…Lesa meira

true

Körfuboltakempur hittust á ný eftir tæpa hálfa öld

Þann 2. mars árið 1975 fór fram merkilegur körfuboltaleikur þegar ÍA tók á móti KR í bikarkeppninni. Þessi leikur var fyrsti opinberi keppnisleikurinn á milli þessara félaga í körfubolta. Liðin voru ekki alveg á sama stað getulega þegar þau mættust sem sýndi sig í 100 stiga sigri KR, 144-44 sem var met í stigamun á…Lesa meira

true

Kristín vann til bronsverðlauna á EM

Borgfirðingurinn Kristín Þórhallsdóttir keppti um helgina á Evrópumeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem fram fór í Tartu í Eistlandi og kom heim hlaðin af verðlaunapeningum. Kristín hefur átt góðu gengi að fagna síðastliðin ár á alþjóðamótum. Hún vann til silfurverðlauna á EM 2022 og varð Evrópumeistari árið 2021. Kristín, sem er núverandi Evrópumethafi í hnébeygju, keppti…Lesa meira