Fréttir

true

Fyrirhugaðar breytingar á ytra útliti á húsi við Kirkjubraut 1

Á fundi bæjarstjórnar Akraness á þriðjudaginn var tekin fyrir umsókn lóðarhafa að Kirkjubraut 1 að fremri byggingin á lóðinni verði í heild sinni klædd að utan með báruklæðningu með þeim formerkjum að allur frágangur á klæðningu verði í samræmi við byggingarstíl frá þeim tíma er húsið var byggt. Bæjarstjórn Akraness samþykkti deiliskipulagsbreytingu Akratorgs vegna Kirkjubrautar…Lesa meira

true

Guðmundur Ingi kom í heimsókn á Akranes

Fimmtudaginn 23. nóvember síðastliðinn sótti Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, Akraneskaupstað heim ásamt þeim Jónu Guðnýju Eyjólfsdóttur, skrifstofustjóra og Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, aðstoðarkonu ráðherra. Ráðherra fékk kynningu á fyrirkomulagi farsældarþjónustu fullorðinna á Akranesi og spennandi verkefnum sem eru í burðarliðnum. Lögð var áhersla á opið samtal um framþróun þeirra málaflokka sem undir ráðuneytið heyra…Lesa meira

true

Borgarnesdagatalið 2024 er komið út

Þorleifur Geirsson hefur nú gefið út Borgarnesdagatalið 2024. Að venju prýða 13 myndir dagatalið og eru þær teknar í öllum mánuðum ársins. Myndirnar má skoða og fá nánari upplýsingar á vefslóðinni: www.hvitatravel.is/dagatal Dagatalið fæst hjá útgefanda og í Olís í Borgarnesi.Lesa meira

true

Straumlaust á hluta Akraness í nótt

Vegna viðhalds Veitna á raforkukerfinu á Akranesi verður rafmagnslaust á tveimur svæðum í eldri hluta bæjarins aðfararnótt föstudagsins 1. desember frá klukkan 00:05 til kl. 04:00. Annars vegar er það við göturnar Suðurgötu, Sóleyjargötu, Háteig, Vitateig, Akursbraut og Hafnarbraut og hins vegar við Kirkjubraut, Akurgerði, Merkigerði, Heiðargerði, Víðigerði, Laugarbraut og Vesturgötu. (sjá meðfylgjandi tvö kort).…Lesa meira

true

Nemendur úr FSN stóðu sig vel í nýsköpunarkeppni

Uppskeruhátíð MEMA 2023 fór fram 23. nóvember síðastliðinn í sal Háskóla Íslands þar sem fjórtán teymi kepptu um að hljóta sigurtitil MEMA 2023. MEMA (Menntamaskína) er nýsköpunarhraðall fyrir framhaldsskólanemendur þar sem þeir vinna að því að þróa hugmyndir sínar og koma þeim í verk í formi frumgerða. Fjölbreytt teymi frá fimm framhaldsskólum tóku þátt í…Lesa meira

true

Stóru línubátarnir sækja langt á miðin

Eftir erfiða tíð í haust er loksins komin smá blíðukafli í veðrið. Því hafa bátar sem gerðir eru út frá höfnum Snæfellsbæjar komist á sjó síðustu daga og sjómenn notið veðurblíðunnar. Aflinn hefur verið góður á línu- og dragnótarveiðum og stóru línubátarnir hafa komið með fullfermi að landi. Þeir hafa leitað langt eftir aflanum, eða…Lesa meira

true

Stígamót biðla til almennings um stuðning

Ásóknin í ráðgjöf hjá Stígamótum hefur aukist til muna undanfarin misseri. Um 150 manns eru á biðlista og biðin eftir fyrsta viðtali er nú 7-8 vikur, sem í raun er alltof langur tími þegar svo stendur á. Þetta kemur fram á heimasíðu Stígamóta. „Við tókum þá ákvörðun að fjölga ráðgjöfum fram til áramóta vegna ástandsins…Lesa meira

true

Ók á ljósastaur

Ekið var á ljósastaur við Hvalfjarðargöng í liðinni viku. Áreksturinn var harður og bifreiðin nokkuð mikið skemmd. Snjóþekja var á vegi, hálka og snjókoma og var einn slasaður fluttur á sjúkrahúsið á Akranesi. Þrjú önnur minni háttar umferðaróhöpp komu upp en öll án slysa á fólki. Maður sem var að setja upp jólaseríu utan á…Lesa meira

true

Rúm milljón safnaðist á góðgerðardegi Grundaskóla

Skólasamfélag Grundaskóla á Akranesi hélt árlegan góðgerðardag síðasta fimmtudag í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum til styrktar hjálparstarfi fyrir börn í neyð eða svokallaðan Malavímarkað. Verkefnið sem ber yfirskriftina „Breytum krónum í gull“ hefur verið haldið allt frá árinu 2007 í samstarfi við Rauða kross Íslands. Til sölu var fjölbreytilegur varningur sem búinn var til af nemendum…Lesa meira

true

Ráðherranefnd um verndun íslenskrar tungu kynnir aðgerðaáætlun

Aðgerðaáætlun í málefnum íslenskrar tungu verður lögð fram sem þingsályktunartillaga á Alþingi á næstu dögum. Ráðherranefnd um málefni íslenskrar tungu kynnti í dag tillögur sínar að alls 19 aðgerðum sem miða að því að styrkja stöðu tungumálsins til framtíðar. Nefndin var sett á laggirnar í nóvember 2022, að tillögu forsætisráðherra. Henni er ætlað að efla…Lesa meira