Fréttir

true

Skagamenn unnu Snæfell eftir framlengingu

Snæfell og ÍA áttust við í Vesturlandsslag í 1. deild karla í körfuknattleik á föstudagskvöldið og var leikurinn í Stykkishólmi. Gestirnir af Skaganum voru sterkari í fyrri hálfleiknum og voru með fimm stiga forystu eftir fyrsta leikhluta, 22:27. Skagamenn fylgdu þessu vel eftir í öðrum leikhluta, bættu enn meir við forskotið og þegar flautað var…Lesa meira

true

Riða greind í skimunarsýni frá bæ í Húna- og Skagahólfi

Fyrir helgi barst Matvælastofnun tilkynning frá Tilraunastöð HÍ að Keldum, þess efnis að sýni úr sláturfé hafi reynst jákvætt m.t.t. riðu. Um er að ræða eitt jákvætt sýni úr tveggja vetra á frá bænum Stórhóli í Húnaþingi Vestra. Á bænum eru um 600 kindur. „Á hverju hausti er tekinn fjöldi sýna úr fullorðnu fé sem…Lesa meira

true

Héldu landsæfingu björgunarsveita á Höfn

Um síðustu helgi fór fram Landsæfing björgunarsveita á Höfn í Hornafirði. Þar komu saman um hundrað félagar í björgunarsveitum frá öllu landinu til æfinga. Í boði voru alls kyns krefjandi verkefni á borð við fjallabjörgun, fyrstu hjálp, leitartækni, sjóbjörgun og meðferð ýmissa björgunartækja. „Landsæfingar björgunarsveita eru metnaðarfullar æfingar þar sem björgunarsveitarfólk fær tækifæri til að…Lesa meira

true

Samið um snjómokstur í sveitum Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur fyrir sitt leiti samþykkt afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar um að framlengja um eitt ár samninga við verktaka um snjómokstur í dreibýli. Það er gert á grundvelli verðfyrirspurnar. Eftirtaldir verktakar muni sinna snjóhreinsun: Andakíll, Bæjarsveit og Lundarreykjadalur: Tryggvi Valur Sæmundsson. Hálsasveit, Reykholtsdalur og Flókadalur: Einar S. Traustason. Hvítársíða, Þverárhlíð, Stafholtstungur, Norðurárdalur, Borgarhreppur með…Lesa meira

true

Blóðbíllinn á Akranesi á morgun

Blóðbankabíllinn verður við Ráðhússplanið Stillholti 16-18 á Akranesi á morgun, þriðjudaginn 31. okt. frá kl. 10:00 – 17:00. Þangað eru allir hvattir til að mæta og gefa blóð.Lesa meira

true

Áhrifaríkur baráttufundur ungra bænda

Bekkurinn var þétt setinn á baráttufundi Samtaka ungra bænda sem fram fór í Salnum í Kópavogi síðastliðinn fimmtudag. Um 300 manns mættu til fundarins og þúsundir fylgdust með í streymi og beinni útsendingu. Fundarmenn samþykktu einróma og með kröftugu lófataki ályktun og áskorun til stjórnvalda um að opna augun og leggja við hlustir þegar rekstrarumhverfi…Lesa meira

true

Tinna er ný markaðsstýra ON

Orka náttúrunnar hefur ráðið Tinnu Jóhannsdóttur í starf markaðsstýru fyrirtækisins og hefur hún þegar hafið störf. Tinna mun einnig taka sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Tinna gegndi starfi framkvæmdastjóra Skógarbaðanna í Eyjafirði þar til fyrr á þessu ári og býr yfir mikilli reynslu á sviði markaðsmála. Áður var hún m.a. forstöðumaður markaðsmála hjá Reginn hf. og…Lesa meira

true

Undirbúa formlegar viðræður um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar

Meirihluti hreppsnefndar Skorradalshrepps samþykkti á fundi sínum 18. október síðastliðinn að óska eftir óformlegum viðræðum við Borgarbyggð um hugsanlega sameiningu sveitarfélaganna. Þrír af fimm sveitarstjórnarfulltrúum samþykktu að; „fela oddvita og varaoddvita að óska eftir samtali við sveitarstjórn Borgarbyggðar um mögulega útfærslu á sameiningarmöguleikum.“ Tveir fulltrúar í sveitarstjórn greiddu ekki atkvæði sín með tillögunni. Pétur Davíðsson…Lesa meira

true

Íbúar í Vesturbyggð og Tálknafjarðarhreppi samþykktu sameiningu

Undanfarið ár hafa tvö sveitarfélög á sunnanverðum Vestfjörðum; Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð, staðið í viðræðum um sameiningu. Ákveðið var að stefna á kosningu meða íbúa og hefur hún undanfarnar vikur farið fram á skrifstofum sveitarfélaganna en sameiningarkosningum lauk í gær þar sem hægt var að mæta á kjörstaði. Talið var strax og kjörstöðum hafði verið lokað…Lesa meira

true

Slys sviðsett í Snæfellsbæ til að þjálfa bráðalækna – myndir

Síðastliðinn fimmtudag komu 16 læknar frá Reykjavík til Snæfellsbæjar í tveggja daga æfingaferð. Aaron Palomares, sem er starfandi læknir í Ólafsvík, sagði í samtali við Skessuhorn að mest áhersla hafi verið lögð á utanspítalaþjónustu. „Flestir af þessum læknum eru vanir að vinna inni á Landspítalanum en hafa lítið farið út á land og auk þess…Lesa meira