Ráðhús Borgarbyggðar. Ljósm. gj.

Samið um snjómokstur í sveitum Borgarbyggðar

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur fyrir sitt leiti samþykkt afgreiðslu umhverfis- og landbúnaðarnefndar um að framlengja um eitt ár samninga við verktaka um snjómokstur í dreibýli. Það er gert á grundvelli verðfyrirspurnar. Eftirtaldir verktakar muni sinna snjóhreinsun: Andakíll, Bæjarsveit og Lundarreykjadalur: Tryggvi Valur Sæmundsson. Hálsasveit, Reykholtsdalur og Flókadalur: Einar S. Traustason. Hvítársíða, Þverárhlíð, Stafholtstungur, Norðurárdalur, Borgarhreppur með þjóðvegi 1 að Borgarnesi: Sleggjulækur ehf. Borgarhreppur vestan Borgarness og Álftaneshreppur: Hálfdán Helgason. Hraunhreppur: Gísli Guðjónsson. Kolbeinsstaðahreppur: Gestur Úlfarsson.

Samið um snjómokstur í sveitum Borgarbyggðar - Skessuhorn