
Bilun hefur orðið á tæknibúnaði á símamastri NOVA við pósthúsið í Ólafsvík og hefur tengibox á mastrinu losnað úr festingu, væntanlega vegna hvassviðris. Að sögn talsmanns hjá NOVA er verið að greina bilunina og senda tæknimenn vestur til viðgerðar og reiknað er með að takist að koma símasambandinu í lag fyrir kvöldið. Allmargir íbúar Ólafsvíkur…Lesa meira







