Fréttir

true

Landsnet hélt kynningarfund um valkosti fyrir lagningu byggðalínu

Það var þétt setinn salurinn á Hótel Hamri í Borgarnesi í gærkvöldi þegar Landsnet hélt þar kynningarfund, fyrir landeigendur og aðra hagaðila, um valkosti við staðsetningu nýrrar byggðalínu raforku um Borgarfjarðarhérað. Framundan er að leggja Holtavörðulínu 1 og var til umræðu lagnaleiðin frá tengivirkinu við Vatnshamra í Andakíl í suðri og að tengipunkti við Hafþórsstaði…Lesa meira

true

Stefna að jafnræði í gjaldheimtu fyrir umferð

Árangur í orkuskiptum kallar á að fjármögnun vegasamgangna verði óháð jarðefnaeldsneyti, segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. “Stefnt er að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis á næstu árum, þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi. Þannig verður kerfið sjálfbærara og styður við áframhaldandi…Lesa meira

true

Fjölgun nær öll erlendis frá

Alls voru 71.951 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. september síðastliðinn og hafði fjölgað um 7.366 frá 1. desember 2022, eða um 11,4%. Íslendingar eru nú 81,7% þeirra sem hér búa. Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 53,3% frá 1. desember á síðasta ári og voru í byrjun mánaðarins 3.473 þeirra skráðir til…Lesa meira

true

Formlegar viðræður hafnar um sameiningu HA og Háskólans á Bifröst

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur undirritað viljayfirlýsingu við Elínu Díönnu Gunnarsdóttir, starfandi rektor Háskólans á Akureyri og Margréti Jónsdóttur Njarðvík rektor Háskólans á Bifröst, um að hefja formlegar viðræður um samstarf og mögulega sameiningu háskólanna tveggja. „Viðræðurnar munu felast í fýsileikagreiningu á því hvaða samruna- eða samstarfsform henti best til að tryggja…Lesa meira

true

Margir að flýta sér í umferðinni

64 ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um of hraðan akstur í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. 142 ökumenn voru myndaðir með færanlegri hraðamyndavél. Tveir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um ölvun við akstur og reyndist annar þeirra einnig vera sviptur ökuréttindum. Afskipti voru höfð af nokkrum ökumönnum vegna notkunar á farsíma undir stýri…Lesa meira

true

„Þetta verður stærsta verkefni Borgarbyggðar fyrr og síðar“

Rætt við Guðveigu Lind Eyglóardóttur forseta sveitarstjórnar Borgarbyggðar – meðal annars um væntanlegt verkefni í Brákarey Guðveig Lind Eyglóardóttir er oddviti Framsóknarflokks í sveitarstjórn Borgarbyggðar. Í kosningum til sveitarstjórnar vorið 2022 fékk listinn fimm menn kjörna og þar með hreinan meirihluta í sveitarstjórn. Sú niðurstaða kom ýmsum á óvart og kannski ekki síst henni sjálfri…Lesa meira

true

Hátíðarguðsþjónusta í Innri-Hólmskirkju á sunnudaginn

Næsta sunnudag, 8. október, verður hátíðarguðsþjónusta í Innri-Hólmskirkju í Hvalfjarðarsveit þar sem fagnað verður enduropnun kirkjunnar og 130 ára vígsluafmæli sem var á síðasta ári. Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands kemur og predikar við messuna. Viðgerðir á kirkjunni hófust vorið 2021 og gert hefur verið við steypuskemmdir og kirkjan máluð að utan, skipt var nánast…Lesa meira

true

Fuglaflensa í haferni og æðarfugli

Í sýnum sem tekin voru úr haferni sem fannst dauður á skeri úti fyrir Barðaströnd um miðjan september fundust skæðar fuglaflensuveirur af stofni sem hefur ekki greinst hér á landi áður og er ekki algengur, HPAI H5N5. Sýnin voru rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. “Í dag bárust svo Matvælastofnun upplýsingar frá Keldum um að…Lesa meira

true

Bólusetning gegn HPV nú óháð kyni

Börnum hér á landi í 7. bekk grunnskóla er nú öllum boðin bólusetning gegn HPV veirunni, óháð kyni. Samhliða hefur verið tekið í notkun nýtt og breiðvirkara bóluefni en áður sem veitir víðtækari vörn gegn krabbameinum af völdum veirunnar. Til eru fjölmargar gerðir HPV veira. Margar þeirra valda engum einkennum, aðrar valda kynfæravörtum og nokkrar…Lesa meira

true

Tinna María í starf auglýsingastjóra

Í dag tekur Tinna María Ólafsdóttir við starfi auglýsingastjóra á Skessuhorni. Í starfi hennar felast fjölbreytt samskipti við sístækkandi hóp auglýsenda í blað og á vef. Á sama tíma lætur Díana Ósk Heiðarsdóttir af störfum. Díana Ósk tekur nú við starfi verslunarstjóra hjá Olís í Borgarnesi. Díönu er þakkað vel unnin störf um leið og…Lesa meira