
Stefna að jafnræði í gjaldheimtu fyrir umferð
Árangur í orkuskiptum kallar á að fjármögnun vegasamgangna verði óháð jarðefnaeldsneyti, segir í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. "Stefnt er að innleiðingu nýs, einfaldara og sanngjarnara kerfis á næstu árum, þar sem greitt er almennt kílómetragjald í stað sértækra gjalda á bensín og olíu sem nú eru í gildi. Þannig verður kerfið sjálfbærara og styður við áframhaldandi uppbyggingu og viðhald vegakerfisins samhliða orkuskiptum til framtíðar." Í frumvarpi fjármálaráðherra er gert ráð fyrir að sex krónu kílómetragjaldi verði komið á rafmagns- og vetnisbíla á næsta ári. Þannig sé áætlað að eigandi rafmagnsbíls sem ekur sömu vegalengd muni greiða sama gjald fyrir afnot vegakerfisins og bensínbíllinn. Tengiltvinnbílar munu greiða tveggja krónu kílómetragjald á næsta ári.