
Svipmynd af fundinum. Ljósm. mm
Landsnet hélt kynningarfund um valkosti fyrir lagningu byggðalínu
Það var þétt setinn salurinn á Hótel Hamri í Borgarnesi í gærkvöldi þegar Landsnet hélt þar kynningarfund, fyrir landeigendur og aðra hagaðila, um valkosti við staðsetningu nýrrar byggðalínu raforku um Borgarfjarðarhérað. Framundan er að leggja Holtavörðulínu 1 og var til umræðu lagnaleiðin frá tengivirkinu við Vatnshamra í Andakíl í suðri og að tengipunkti við Hafþórsstaði í Norðurárdal í norðri.