Fréttir

true

Fljótandi málmur fór á villigötur

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar var kallað út klukkan 19:15 í gærkvöldi að verksmiðju Elkem Ísland á Grundartanga. Þar hafði orðið óhapp þegar fljótandi málmur fór á villigötur. Enginn slasaðist við óhappið en hlúa þurfti að einum starfsmanni verksmiðjunnar sem fann til eymsla. Þetta staðfestir Álfheiður Ágústsdóttir forstjóri Elkem Ísland á Grundartanga í samtali við Skessuhorn.Lesa meira

true

Skagamenn í fjórða sæti eftir sigur á KR

Það var ansi mikið undir þegar gömlu stórveldin, ÍA og KR, mættust á Elkem vellinum á Akranesi í gærkvöldi. Skagamenn gátu með sigri komið sér upp í fjórða sætið og KR reynt að koma sér ofar á töfluna eftir slæmt gengi undanfarið. Átta ár voru frá síðasta sigurleik ÍA á KR í deildinni og það…Lesa meira

true

Flott veiði í opnun Flóku

„Já, við vorum að opna Flókadalsá í Borgarfirði og það var gaman. Það eru komnir laxar í ána,“ sagði Hjörtur Arnar Óskarsson er við heyrðum í honum við Flókadalsá í gærmorgun. Við opnunina veiddust fimm laxa og töluvert af fiski var að sögn komið á svæðið. „Við vorum á svæði tvö. Þetta er skemmtileg veiðiá…Lesa meira

true

Fab Lab smiðjan á Breið stækkuð

Aðsókn í Fab Lab Smiðju Vesturlands sem staðsett er í Breið nýsköpunarsetri á Akranesi hefur aukist mikið síðustu mánuði og er stækkun framundan. Nýlega fékk smiðjan allt rýmið sem hún er staðsett í til umráða og fylgja því miklar endurbætur og nýjungar. Fram kemur á FB síðu Fab Lab Smiðju Vesturlands að vegna aukinnar aðsóknar…Lesa meira

true

Nýtt deiliskipuleg Smiðjuvalla

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti í síðustu viku breytingu á deiliskipulagi Smiðjuvalla vegna lóðanna 12-22 og verður fyrirhuguð breyting auglýst skv. skipulagslögum. Breytingin felur m.a. í sér að sameinaðar verða lóðirnar Smiðjuvellir 12, 14, 16, 18, 20 og 22 í eina lóð; Smiðjuvelli 12-22. Núverandi hús verður rifið en það er nýlegt iðnaðarhús með sex innkeyrsludyrum. Á…Lesa meira

true

Jóhanna Vigdís kjörin íþróttamanneskja Dalabyggðar

UDN afhenti verðlaun fyrir íþróttamanneskju ársins 2023 á þjóðhátíðardaginn í Dölum. Þau hlutu Jóhanna Vigdís Pálmadóttir glímukona. Fram kom að Jóhanna þykir fyrirmyndar íþróttamanneskja, ekki aðeins í ljósi afreka sinna, heldur einnig hvernig hún styður við og hvetur félaga sína áfram í íþróttum.Lesa meira

true

Meira stuð!

Nú hefur Orkusalan sett upp nýja hleðslustöð í Grundarfirði. Stöðin er 150 kW og geta tveir hlaðið í einu. Frítt verður í stöðina fram til mánudagsins 24. júní. „Við hvetjum öll til að hlaða í Grundarfirði og fá sér að borða á Kaffi 59 á meðan. Mundu að hlaða niður e1 appinu,“ segir í tilkynningu…Lesa meira

true

Mæðgur heiðraðar

Hanna Ágústa Olgeirsdóttir söngkona var útnefnd Listamanneskja Borgarbyggðar 2024 á þjóðhátíðardaginn í Borgarnesi. Tók Olgeir faðir hennar við viðurkenningunni fyrir hennar hönd. Eiginkona Olgeirs, Theodóra Þorsteinsdóttir, var einnig heiðruð fyrir starf sitt í þágu tónlistar í Borgarbyggð í áranna rás. Hér eru þau hjónin sæl með sig og sína eftir athöfnina í Skallagrímsgarði.Lesa meira

true

Norðurálsmótið í knattspyrnu um helgina

39. Norðurálsmótið verður haldið á Akranesi frá 20.-23. júní eða frá fimmtudegi til sunnudags. Mótið er fyrir 7. og 8. flokk drengja og stúlkna en í fyrra var í fyrsta skiptið sem 7. flokkur stúlkna tók þátt í mótinu. 8. flokkur spilar á einum degi á morgun, fimmtudag, og 7. flokkur hefur leik á föstudaginn…Lesa meira

true

Birgir Þórisson er bæjarlistamaður Akraness 2024

Birgir Þórisson var útnefndur bæjarlistamaður Akraness 2024 við hátíðlega athöfn á Akratorgi í gær á þjóðhátíðardaginn. Birgir var að vísu staddur erlendis en í fjarveru hans tóku þeir Hlynur og Arnar á móti viðurkenningunni. Birgir hefur verið viðloðandi tónlist nær allt sitt líf, en hann ólst upp í Borgarnesi en býr nú ásamt fjölskyldu sinni…Lesa meira