
Viktor Jónsson er markahæstur í Bestu deildinni með 8 mörk ásamt Patrick Pedersen úr Val. Ljósm. vaks
Skagamenn í fjórða sæti eftir sigur á KR
Það var ansi mikið undir þegar gömlu stórveldin, ÍA og KR, mættust á Elkem vellinum á Akranesi í gærkvöldi. Skagamenn gátu með sigri komið sér upp í fjórða sætið og KR reynt að koma sér ofar á töfluna eftir slæmt gengi undanfarið. Átta ár voru frá síðasta sigurleik ÍA á KR í deildinni og það var alveg ljóst frá byrjun leiks að leikmenn ÍA voru með smá blóðbragð í munni til að reyna að breyta því.