
Verðlaunin afhent Jóhönnu Vigdísi. Ljósm. sla
Jóhanna Vigdís kjörin íþróttamanneskja Dalabyggðar
UDN afhenti verðlaun fyrir íþróttamanneskju ársins 2023 á þjóðhátíðardaginn í Dölum. Þau hlutu Jóhanna Vigdís Pálmadóttir glímukona. Fram kom að Jóhanna þykir fyrirmyndar íþróttamanneskja, ekki aðeins í ljósi afreka sinna, heldur einnig hvernig hún styður við og hvetur félaga sína áfram í íþróttum.