
Theodóra og Olgeir Helgi. Ljósm. hig
Mæðgur heiðraðar
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir söngkona var útnefnd Listamanneskja Borgarbyggðar 2024 á þjóðhátíðardaginn í Borgarnesi. Tók Olgeir faðir hennar við viðurkenningunni fyrir hennar hönd. Eiginkona Olgeirs, Theodóra Þorsteinsdóttir, var einnig heiðruð fyrir starf sitt í þágu tónlistar í Borgarbyggð í áranna rás. Hér eru þau hjónin sæl með sig og sína eftir athöfnina í Skallagrímsgarði.