
Norðurálsmótið í knattspyrnu um helgina
39. Norðurálsmótið verður haldið á Akranesi frá 20.-23. júní eða frá fimmtudegi til sunnudags. Mótið er fyrir 7. og 8. flokk drengja og stúlkna en í fyrra var í fyrsta skiptið sem 7. flokkur stúlkna tók þátt í mótinu. 8. flokkur spilar á einum degi á morgun, fimmtudag, og 7. flokkur hefur leik á föstudaginn og lýkur leik á sunnudaginn. Þátttaka á Norðurálsmótinu í ár er aðeins meiri en í fyrra en skráðir þátttakendur eru alls um 1.830. Páll Guðmundur Ásgeirsson er verkefnastjóri Knattspyrnufélags ÍA og segir hann í samtali við Skessuhorn að undirbúningur vegna mótsins hafi gengið mjög vel. Varðandi mönnun og vaktir á mótinu segir Páll að það séu gríðarlega mörg störf sem koma að einu svona móti og það hafi bara gengið nokkuð vel að manna mótið og þeir séu afar þakklátir fyrir það.