Fréttir

true

Missti stjórn á húsbifreið

Allmörg umferðaróhöpp komu inn á borð Lögreglunnar á Vesturlandi í liðinni viku. Tilkynnt var um þriggja bíla árekstur í Hvalfjarðargöngum þar sem minni háttar meiðsli urðu á fólki. Þá varð minni háttar árekstur milli tveggja bifreiða á Snæfellsnesi, án slysa á fólki. Harður árekstur tveggja bifreiða varð í Borgarnesi og urðu minni háttar meiðsli á…Lesa meira

true

Sex luku sveinsprófi frá FVA

Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi útskrifaði nýverið sex nemendur með sveinspróf í húsasmíði. Prófið var haldið í húsakynnum FVA og stóðust allir nemendur með glans. Mikill áhugi er á húsasmíðabraut en alls var 31 nemandi skráður í dagskóla og 44 nemendur í dreifnám. Nú þegar hafa 16 sótt um að hefja nám í dagskóla í húsasmíði…Lesa meira

true

Aðsóknarmet slegið við Háskólann á Bifröst

Nýtt aðsóknarmet var slegið við Háskólann á Bifröst nú á dögunum en umsóknarfrestur rann út 5. júní sl. Á heimasíðu skólans kemur fram að alls hafi borist um 1.460 umsóknir, sem gera þrefalt fleiri umsóknir en á sama tíma í fyrra. Aðsóknin hefur því hlutfallslega aukist um 200%. Fyrrum aðsóknarmet var frá árinu 2020 en…Lesa meira

true

Samið um húsnæðisuppbyggingu í Stykkishólmi

Tekist hefur samkomulag um aðgerðir til að auka framboð íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi árin 2024-2029 og fjármögnun uppbyggingar á hagkvæmum íbúðum og félagslegu húsnæði í bæjarfélaginu. Það voru Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra, Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri og Hermann Jónasson forstjóri HMS, sem undirrituðu samkomulag þar að lútandi og byggir það á rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um aðgerðir…Lesa meira

true

Loftmengun sú mesta í síðustu gosum

Talsvert mikil mengun mælist í dag frá eldgosinu á Reykjanesi. Finnst hún m.a. víða á höfuðborgarsvæðinu og á sunnanverðu Vesturlandi. Mengunin er af völdum brennisteinsdíoxíðs, SO2, og fíngerðs svifryks í formi súlfatagna, SO4. Hæstu gildi brennisteinsdíoxíðs SO2 á höfuðborgarsvæðinu voru í dag komin yfir 500 µg/m3 og við því búist að mengunin yrði viðvarandi a.m.k.…Lesa meira

true

Ævintýraleg fjölgun í Skorradalshreppi

Íbúum á Vesturlandi heldur áfram að fjölga, en frá 1. desember á síðasta ári og til 1. júní sl. hefur þeim fjölgað um 1,6%. Eru nú 18.321 og fjölgaði um 280 á tímabilinu. Langmest fjölgun á landsvísu varð í Skorradalshreppi á þessum sex mánuðum. Þar hefur fjölgað um 11 íbúa, sem jafngildir 18,6% og eru…Lesa meira

true

Fyrstu laxarnir komnir á land úr Þverá

Þverá í Borgarfirði var opnuð í gær og veiddust fjórir laxar fyrir hádegi en enginn eftir það. Áin var vatnsmikil og aðeins lítuð en er nú að hreinsa sig enda blíðskaparveður í Borgarfirði. „Áin er að hreinsa sig og þetta verður betri með hverjum klukkutímanum,“ sagði okkar maður á árbakkanum. Kjarará verður opnuð 15. júní…Lesa meira

true

Sunna Rún valin í hóp fyrir Norðurlandamótið

Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U16 kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 manna hóp sem tekur þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer í sumar. Mótið verður haldið í Finnlandi frá 30. júní til 8. júlí og mætir Ísland liði Englands í fyrsta leik sem verður mánudaginn 1. júlí klukkan 10. Úrslitin í þeim leik skera svo úr…Lesa meira

true

Ráðherra gefur út leyfi til veiða á 128 langreyðum

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra hefur veitt Hval hf. leyfi til veiða á 128 langreyðum. Sett eru skilyrði með leyfisveitingunni að þessu sinni og dýrunum fækkað sem veiða má í sumar. Leyfið er takmarkað með þeim hætti að veiða má 99 dýr á svæðinu Grænland – Vestur-Ísland og 29 dýr á svæðinu Austur-Ísland – Færeyjar, eða…Lesa meira

true

Fundu fíkniefni við húsleit

Í liðinni viku voru um 40 ökumenn stöðvaðir vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Einnig var nokkuð um afskipti af beltislausum ökumönnum og af ökumönnum sem voru í símanum við akstur. Bílvelta varð á Snæfellsnesi og slasaðist ökumaður bifreiðarinnar lítillega og var fluttur á brott með sjúkrabifreið til aðhlynningar. Ökumaðurinn er grunaður…Lesa meira