Ævintýraleg fjölgun í Skorradalshreppi

Íbúum á Vesturlandi heldur áfram að fjölga, en frá 1. desember á síðasta ári og til 1. júní sl. hefur þeim fjölgað um 1,6%. Eru nú 18.321 og fjölgaði um 280 á tímabilinu. Langmest fjölgun á landsvísu varð í Skorradalshreppi á þessum sex mánuðum. Þar hefur fjölgað um 11 íbúa, sem jafngildir 18,6% og eru íbúar þar nú 70 talsins. Einnig er töluverð fjölgun í Hvalfjarðarsveit. Þar hefur fjölgað um 31 íbúa undanfarna sex mánuði, eða um 4,1% og eru íbúar þar nú 792.

Ævintýraleg fjölgun í Skorradalshreppi - Skessuhorn