
Frá Bifröst í Borgarfirði. Ljósm. úr safni
Aðsóknarmet slegið við Háskólann á Bifröst
Nýtt aðsóknarmet var slegið við Háskólann á Bifröst nú á dögunum en umsóknarfrestur rann út 5. júní sl. Á heimasíðu skólans kemur fram að alls hafi borist um 1.460 umsóknir, sem gera þrefalt fleiri umsóknir en á sama tíma í fyrra. Aðsóknin hefur því hlutfallslega aukist um 200%. Fyrrum aðsóknarmet var frá árinu 2020 en þá bárust liðlega 875 umsóknir.