Sunna Rún Sigurðardóttir. Ljósm. vaks

Sunna Rún valin í hóp fyrir Norðurlandamótið

Þórður Þórðarson, landsliðsþjálfari U16 kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 manna hóp sem tekur þátt í Norðurlandamótinu sem fram fer í sumar. Mótið verður haldið í Finnlandi frá 30. júní til 8. júlí og mætir Ísland liði Englands í fyrsta leik sem verður mánudaginn 1. júlí klukkan 10. Úrslitin í þeim leik skera svo úr um það hvaða liði Ísland mætir í næstu tveimur leikjum.