
Stykkishólmur. Ljósm. gj
Samið um húsnæðisuppbyggingu í Stykkishólmi
Tekist hefur samkomulag um aðgerðir til að auka framboð íbúðarhúsnæðis í Stykkishólmi árin 2024-2029 og fjármögnun uppbyggingar á hagkvæmum íbúðum og félagslegu húsnæði í bæjarfélaginu. Það voru Svandís Svavarsdóttir innviðaráðherra, Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri og Hermann Jónasson forstjóri HMS, sem undirrituðu samkomulag þar að lútandi og byggir það á rammasamningi ríkis og sveitarfélaga um aðgerðir í húsnæðismálum, sem gerður var sumarið 2022.