Gosmengun nær alla leið í Borgarfjörð, en þessi mynd var tekin í Reykholtsdalnum fyrr í dag. Ljósm. Stefán Magnússon

Loftmengun sú mesta í síðustu gosum

Talsvert mikil mengun mælist í dag frá eldgosinu á Reykjanesi. Finnst hún m.a. víða á höfuðborgarsvæðinu og á sunnanverðu Vesturlandi. Mengunin er af völdum brennisteinsdíoxíðs, SO2, og fíngerðs svifryks í formi súlfatagna, SO4. Hæstu gildi brennisteinsdíoxíðs SO2 á höfuðborgarsvæðinu voru í dag komin yfir 500 µg/m3 og við því búist að mengunin yrði viðvarandi a.m.k. til kvölds. Þorsteinn Jóhannsson, sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun, sagði í samtali við fréttavef Ríkisútvarpsins að þetta væri óvenjulega mikil mengun, sú mestu í þessu gosi og líklega einnig þá mestu í þessum gosum yfirleitt síðustu árin.