Fréttir

true

Þrír tapleikir í röð hjá Skallagrími

Skallagrímur spilaði gegn liði Kríunnar á laugardaginn í leik í fjórðu deildinni í knattspyrnu en spilað var á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. Leikmenn Kríu byrjuðu betur og náðu að spila lið Skallagríms oftar en ekki til vandræða. Leikurinn jafnaðist örlítið fyrir hálfleik og náðu Skallagrímsmenn að halda betur í boltann en mikið munaði um yfirvegun Elís…Lesa meira

true

Einn lést í árekstrinum í Norðurárdal í gær

Á níunda tímanum í gærkvöldið varð harður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum skammt frá Hraunsnefi í Norðurárdal í Borgarfirði. Fólksbifreið sem ekið var í norður skall framan á jeppa sem kom úr gagnstæðri átt. Lögreglan á Vesturlandi hefur nú greint frá því að ökumaður fólksbifreiðarinnar lést en ökumaður og farþegi í jeppabifreiðinni voru fluttir með…Lesa meira

true

Guðrún Karítas keppti á sínu fyrsta Evrópumeistaramóti

Borgfirðingurinn Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir keppti á Evrópumóti í frjálsum íþróttum í gærmorgun. Guðrún keppti í forkeppni í sleggjukasti en missti af úrslitasæti. Hún kastaði lengst 67,57 metra og hafnaði í 17. sæti á mótinu. Guðrún Karítas og Elísabet Rut Rúnarsdóttir kepptu í sleggjukasti fyrir Íslands hönd á mótinu en þær lentu í Róm á laugardag…Lesa meira

true

Kveikt í sinu á þremur stöðum

Slökkvilið Borgarbyggðar var snemma í morgun kallað út vegna sinuelds á nokkrum stöðum í vegkantinum skammt frá Hítará á Mýrum. Að sögn Bjarna K Þorsteinssonar varaslökkviliðsstjóra gekk vel að slökkva eldana, en veður var kyrrt og útbreiðsla þeirra því hæg. Bjarni sagði að greinilega hefði verið kveikt í á þremur stöðum við veginn. Hvetur hann…Lesa meira

true

Tveir fluttir með þyrlu eftir árekstur

Á níunda tímanum í gærkvöldi varð harður árekstur tveggja bíla á þjóðveginum í Norðurárdal í Borgarfirði, fólksbíll og jeppi skullu saman. Tækjabíll slökkviliðs var m.a. kallaður út þar sem beita þurfti klippum á báða bílana. Að beiðni lögreglu var þyrla gæslunnar einnig kölluð út og flutti hún tvo slasaða á sjúkrahús. Alls voru þrír í…Lesa meira

true

Margmenni þegar Bílás bauð á bílasýningu

Það var margt um manninn síðastliðinn laugardag þegar Bílasalan Bílás á Akranesi, í samstarfi við BL, bauð í grillveislu og bílasýningu. Sýningin var í tilefni þess að Bílás er nú orðinn söluaðili BL bíla á Vesturlandi. Gestir gátu gætt sér á grilluðum pylsum og drykkjum og strax í hádeginu var áhugasamt fólk mætt. Á myndinni…Lesa meira

true

Leggja til eins prósents aukningu þorskkvóta

Hafrannsóknastofnun kynnti í síðustu viku úttekt á ástandi nytjastofna og ráðgjöf fyrir næsta fiskveiðiár. Lögð er til 1% hækkun aflamarks þorsks fyrir næsta fiskveiðiár. Byggir sú ráðgjöf á aflareglu stjórnvalda. Samkvæmt því verður þorskkvótinn á næsta ári 213 .214 tonn. Gert er ráð fyrir að stærð viðmiðunarstofns þorsks verði svipuð næstu tvö til þrjú ár þegar…Lesa meira

true

Háskólaráð LbhÍ til næstu tveggja ára

Háskólaráð LbhÍ er nú fullskipað til næstu tveggja ára. Í því sitja auk Ragnheiðar I Þórarinsdóttur rektors: Birgir Þór Haraldsson sem fulltrúi háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og Jón Bjarnason sem varamaður, Haukur Þórðarson og Jóhanna Gísladóttir sem fulltrúar starfsmanna og Áshildur Bragadóttir og Isabel C. Barrio sem varamenn. Ingiberg Daði Kjartansson sem fulltrúi nemenda og…Lesa meira

true

27 laxar í opnunarhollinu í Norðurá

„Veiðin gekk bara vel í opnun Norðurár en hollið endaði í 27 flottum löxum, allt tveggja ára laxar utan einn,“ sagði Brynjar Þór Hreggviðsson við Norðurá rétt áðan eftir að fyrsta hollið hafði hætt veiðum í vikunni. „Þetta er gott miðað við að það var kalt og rok en fiskurinn tók engu að síður vel…Lesa meira