
Brynjar Þór Hreggviðsson með flottan lax úr opunarhollinu í Norðurá.
27 laxar í opnunarhollinu í Norðurá
„Veiðin gekk bara vel í opnun Norðurár en hollið endaði í 27 flottum löxum, allt tveggja ára laxar utan einn,“ sagði Brynjar Þór Hreggviðsson við Norðurá rétt áðan eftir að fyrsta hollið hafði hætt veiðum í vikunni. „Þetta er gott miðað við að það var kalt og rok en fiskurinn tók engu að síður vel hjá veiðimönnum,“ sagði Brynjar en hann veiddi fyrsta laxinn sinn í sumar við opnun árinnar.