Fréttir

true

Kosið verður í fjölbraut að þessu sinni

Næstkomandi laugardag verður sjöundi forseti lýðveldisins kosinn. Nýr kjörstaður er á Akranesi, í stærsta sveitarfélagi landshlutans. Nú verður kosið í húsi Fjölbrautaskóla Vesturlands við Vogabraut 5. Í undanförnum kosningum hefur ýmist verið kosið í Brekkubæjarskóla eða í Íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum. Kjörfundur á Akranesi hefst klukkan 9 en lýkur klukkan 22. Kjördeildir eru fjórar á Akranesi.Lesa meira

true

Bláfánanum flaggað í tólfta sinn á Langasandi á morgun

Bláfáninn er alþjóðleg umhverfisvottun sem veitt er smábátahöfnum, baðströndum og þjónustuaðilum í sjávarferðamennsku fyrir árangursríkt starf í umhverfismálum. Meginmarkmið verkefnisins er að vernda lífríki haf – og strandsvæða, draga úr umhverfisáhrifum, bæta öryggi og efla umhverfisvitund. Bláfáninn er veittur þeim baðströndum sem uppfylla ákveðin skilyrði sem lúta að eftirfarandi þáttum; umhverfisfræðslu og upplýsingagjöf, vatnsgæðum, umhverfisstjórnun,…Lesa meira

true

Harður árekstur tveggja bíla í Kolgrafafirði

Undir kvöld í gær varð harður tveggja bíla árekstur í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi og höfnuðu báðir bílar utan vegar. Tiltækt lið viðbragðsaðila var kallað á vettvang en m.a. þurfti að beita klippum slökkviliðs á annan bílinn til að ná ökumanni hans út. Viðkomandi var fluttur slasaður á Sjúkrahúsið á Akranesi til aðhlynningar. Uppfært kl 10:50:…Lesa meira

true

Hreinsuðu nánasta umhverfi skólans

Vikuna 13. – 17. maí síðastliðinn var hreinsivika í Grunnskólanum í Borgarnesi. Tiltektardagurinn ,,Tökum til hendinni“ er eitt af þeim verkefnum sem skólinn tekur sér fyrir hendur á vorin og felst í því að hreinsa nánasta umhverfi skólans. Svæðinu er þá skipt niður á milli bekkja og skipuleggja nemendur og kennarar hvernig þeir munu vinna…Lesa meira

true

Diskóeyjan sló í gegn og var tekin upp til sýningar

Sýningum á Diskóeyjunni í uppfærslu nemenda í Brekkubæjarskóla á Akranesi lauk um síðustu helgi. Alls voru sýndar ellefu sýningar, uppselt var á níu þeirra og nánast fullt á hinar tvær. Síðasta miðvikudag kom tökulið frá kvikmyndafyrirtækinu Glassriver sem framleiðir kvikmyndir og sjónvarpsefni og tók sýninguna upp. Fyrirtækið hefur meðal annars séð um upptökur á kvikmyndinni…Lesa meira

true

Kári með tap á móti Hvíta riddaranum

Kári og Hvíti riddarinn mættust í fjórðu umferð 3. deildar karla í knattspyrnu á föstudagskvöldið og var leikurinn í Akraneshöllinni. Upphaflega átti leikurinn að vera í Mosfellsbæ en vegna veðurs var skipt á heimaleikjum liðanna. Hvíti riddarinn náði forystu á 22. mínútu með marki frá Alexander Aroni Tómassyni og staðan 0-1 í hálfleik. Alexander Aron…Lesa meira

true

Fyrsti lax sumarsins kominn á land úr Skugga

Fyrsti lax sumarsins er kominn á land. Hann var veiddur í morgun í Skugga í Borgarfirði og veiðimaðurinn var Mikael Marinó Rivera, Reykvíkingur ársins í fyrra. Fiskurinn var 84 cm, nýgengin og falleg hrygna. Jón Þór Júlíusson segir að árin 2021 og 22 hafi fyrstu laxar sumarsins einmitt verið veiddir í Skugga. Vatnsbúskapur ánna er…Lesa meira

true

UMFG fór í keppnisferð í Neskaupstað

Það voru hressir krakkar sem lögðu land undir fót síðasta föstudag er þeir stigu upp í rútu snemma morguns. Þá var ferðinni heitið alla leið í Neskaupstað þar sem Íslandsmótið í blaki fór fram. Keppt var allan laugardaginn og fyrri hluta sunnudags. U12 og U14 lið í UMFG lentu bæði í öðru sæti og hlutu…Lesa meira

true

Rafmagnslaust um tíma á morgun

Rarik tilkynnti í morgun um að rafmagnslaust verður frá aðveitustöð á Vegamótum að Fíflholtum á Mýrum frá klukkan 11.00-17.00 á morgun, þriðjudaginn 28. maí. Mögulega kemur rafmagn á í stuttan tíma undir lok straumleysis vegna prófunar. Einnig verður rafmagnslaust á Melasveitarlínu frá aðveitustöðinni á Brennimel til og með Þjófaklettum, þriðjudaginn 28. maí, frá klukkan 17.00-20.00.Lesa meira

true

Knattspyrnufélagið Kjartan og Eiður Sigurðsson héldu upp á afmæli

Það var mikið líf í Borgarnesi á laugardaginn síðasta en nú er 30 ár liðin frá stofnun Knattspyrnufélagsins Kjartans. Félagið var stofnað af vinahópi, sem þá bjó í Kjartansgötu í Borgarnesi og æfði fótbolta á gamla Kjartansvelli. Á hápunkti félagsins spiluðu þeir leik á þá splunkunýjum Skallagrímsvelli í Borgarnesi, gegn Snæfelli frá Stykkishólmi. Gestum var…Lesa meira