Fréttir

true

Mikill áhugi fyrir að starfa í slökkviliðinu

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar auglýsti nýverið eftir áhugasömum einstaklingum til að starfa í slökkviliði og var með kynningarfund síðasta miðvikudag. Mikill áhugi reyndist vera fyrir að starfa í slökkviliðinu og mættu á annan tug áhugasamra einstaklinga til að kynna sér starf slökkviliðsmannsins. Að sögn Jens Heiðars Ragnarssonar slökkviliðsstjóra stendur til að ráða fjóra einstaklinga í…Lesa meira

true

Stækkun fyrirhuguð við leikskólann Ugluklett

Á fundi sveitarstjórnar Borgarbyggðar 11. apríl síðastliðinn var samþykkt að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Nýhönnun ehf., um aðalhönnun viðbyggingar við leikskólann Ugluklett í Borgarnesi. Leikskólinn tók til starfa haustið 2007 en skólinn stendur í útjaðri Borgarness, þar sem villtur gróður og náttúra eru við garðhliðið. Kristín Gísladóttir, skólastjóri Uglukletts, segir spennandi tíma framundan.…Lesa meira

true

Bekkir komnir á Breiðina

Fyrr á árinu skemmdist bryggjan á Breið við Akranesvita þegar bíl var ekið út á hana. Starfsmenn hjá Þjónustumiðstöð Akraneskaupstaðar lagfærðu skemmdirnar og til að hindra endurtekningu hafa þeir smíðað bekki og komið fyrir á bryggjunni.Lesa meira

true

Frambjóðendur á ferð og flugi

Nú er baráttan um Bessastaði hafin fyrir alvöru hjá þeim ellefu frambjóðendum sem verða í kjöri. Frambjóðendur hafa margir verið á faraldsfæti að undanförnu og meðal annars komið við á Vesturlandi. Skessuhorn vekur athygli á að hægt er að senda ljósmyndir úr framboðskynningum á ritstjórn til birtingar, á netfangið skessuhorn@skessuhorn.isLesa meira

true

Fundur haldinn vegna verkefnisins Gott að eldast

Miðvikudaginn 17. apríl sl. komu fulltrúar sveitarfélaga, hjúkrunarheimila og HVE saman til fundar vegna verkefnisins Gott að eldast á Vesturlandi. Ráðgjafar verkefnisins hjá Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu fóru yfir stöðu verkefnisins á landsvísu ásamt því að fulltrúar verkefnisins á Vesturlandi fjölluðu um verklag og fleira vegna útfærslu þess á Vesturlandi. Fundurinn var haldinn á Höfða, hjúkrunar-…Lesa meira

true

Sólarhylling heldri borgara

Eldri borgarar á Akranesi eru býsna duglegir að fara saman í skipulagðar gönguferðir. Þessi mynd var tekin í morgun þegar þeir ákváðu að hylla sólina fyrir góða frammistöðu. Þarna er hópurinn við Sólmundarhöfða. Myndina tók Helga Ólöf Óliversdóttir.Lesa meira

true

Ellefu gild framboð til embættis forseta Íslands

Landskjörstjórn hefur nú úrskurðað að ellefu gild framboð eru til embættis forseta Íslands, en kosið verður laugardaginn 1. júní. Framboð tveggja voru úrskurðuð ógild, þeirra Kára Vilmundarsonar Hansen og Viktors Traustasonar. Aldrei hafa fleiri verið í framboði. Nú verða frambjóðendur tveimur fleiri en voru í forsetakosningunum 2016 og fimm fleira en 2012. Þetta er því…Lesa meira

true

Naumt tap ÍA gegn FH í spjaldaleik

Hátt í fimm hundruð áhorfendur voru mættir í Akraneshöllina í gær til að horfa á leik ÍA og FH í fjórðu umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Liðin hófu leik af fullum krafti og áttu sitt hvort færið í upphafi leiks. Fyrsta mark leiksins kom á 13. mínútu þegar FH-ingurinn Kjartan Kári Halldórsson lét boltann…Lesa meira

true

Kúalaug á Reykhólum fær myndarlegan styrk

Síðastliðinn föstudag úthlutaði Lilja Dögg Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, styrkjum úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2024. Alls voru 29 verkefni sem hlutu styrki en samtals var úthlutað 538,7 milljónum króna sem dreifast um allt land. Tveir stærstu styrkirnir voru að upphæð 90 milljónir króna hvor. Annars vegar til áframhaldandi uppbyggingar við Stuðlagil á Austurlandi og…Lesa meira

true

Mega endurnýta eyrnamerki

Matvælaráðuneytið hefur upplýst eftirlitsstofnun EFTA (ESA) um að það hyggist fresta gildistöku breytingareglugerðar um merkingar búfjár. „Ljóst þykir að bændur þurfi meiri tíma til aðlögunar og verður því heimilt að nota endurnýtanleg merki í sláturtíð árið 2024 og til 1. nóvember árið 2025. Frekari framlenging mun ekki koma til skoðunar að þeim tíma liðnum,“ segir…Lesa meira