
Matvælastofnun vill vara við neyslu á tveimur lotum af brauðskinku frá Stjörnugrís vegna gruns um listeríu. Fyrirtækið hefur innkallað skinkuna í samráði við Matvælastofnun. Innköllunin á eingöngu við um eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Brauðskinka Framleiðandi: Stjörnugrís. Síðasti notkunardagur: 16.05.2024 Lotunúmer: 606124096 Dreifing: Bónus, Krónan, Nettó, Skólamatur.Lesa meira








