Ólafsvíkurvöllur er í öðru sæti yfir skemmtilegustu velli landsins. Ljósm. tfk

Ólafsvíkurvöllur og Skallagrímsvöllur á lista topp tíu valla landsins

Íþróttadeild Ríkisútvarpsins fór nýverið í skemmtilegan samkvæmisleik og fékk nokkra álitsgjafa í lið með sér til að kveða úr um hvaða knattspyrnuvellir hér á landi væru í fremstu röð. „Hvaða fótboltavöllur er sá flottasti á landinu,“ var einfaldlega spurt, en álitsgjafarnir voru fengnir til að skera úr um hvaða vallarstæði bæru af. Niðurstaðan varð knattspyrnuvöllum á Vesturlandi mjög í vil, en Ólafsvíkurvöllur og Skallagrímsvöllur skipa sér á listann og Akranesvöllur kemur nærri því að lenda þar.