
Kíkt í Krosslaug.
Menningarferð FaB um Lundarreykjadal
Félag aldraðra í Borgarfjarðardölum fór síðastliðinn miðvikudag í menningar- og skemmtiferð um Lundarreykjadal og tóku þátt í ferðinni rétt rúmlega fjörutíu félagar. Undirbúningur ferðarinnar var í höndum ferðanefndar FaB, en hana skipa þeir Þórólfur Sveinsson, Guðmundur Sigurðsson og Gísli Jónsson.