Fréttir

true

Skagamenn komnir upp við vegg í körfunni

Skagamenn tóku á móti Fjölni í annarri viðureign liðanna í 8-liða úrslitum 1. deildar í körfuknattleik í gærkvöldi um eitt laust sæti í Subway deildinni á næsta tímabili. Leikurinn fór fram fyrir nánast fullu húsi á Jaðarsbökkum og var öllu tjaldað til, grillaðir hamborgarar voru til sölu og mikil stemning í húsinu. Fyrir leik leiddi…Lesa meira

true

Snæfell tapaði í leik eitt gegn Tindastól

Úrslitakeppni um sæti í Subway deild kvenna í körfuknattleik hófst um helgina. Aþena vann KR í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum á sunnudag en leik Snæfells og Tindastóls var frestað vegna veðurs og var hann því færður yfir á mánudag. Vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit um sæti í Subway deildinni en…Lesa meira

true

Magnús 60 ára í dag

Magnús Magnússon ritstjóri Skessuhorns fagnar sextugsafmæli sínu í dag. Þar sem hann er erlendis langar okkur starfsfólki blaðsins að senda honum kveðju. Magnús hefur haldið útgáfu Skessuhornsins uppi í rúman aldarfjórðung og við leyfum okkur að segja að blaðið hafi staðið fyrir gríðarlega mikilvægri upplýsingamiðlun og gerir enn. Þar á ritstjórinn stóran hlut, hann er…Lesa meira

true

Léku sér í rokinu

Í gærmorgun var töluvert óveður á Snæfellsnesi og var vegurinn yfir Fróðárheiði lokaður og Útnesvegur, milli Hellissands og Hellnar, einnig lokaður. Erfið skilyrði voru til moksturs en bálhvasst var til að mynda í Staðarsveit á Snæfellsnesi og miklar vindhviður. Skessuhorn fékk mynd frá íbúa Böðvarsholts í Staðarsveit þar sem börnin á bænum léku sér í…Lesa meira

true

Land og verk með lægsta tilboðið

Á fundi skipulags- og umhverfisráðs Akraneskaupstaðar síðasta fimmtudag voru tilboð kynnt í endurgerð á íþróttahúsinu á Vesturgötu auk þess sem Anna María Þráinsdóttir verkefnastjóri fór yfir tilboðin. Kostnaðaráætlun verksins var 228.230.730 kr. Eftir yfirferð tilboða voru gild tilboð eftirfarandi: Land og verk ehf: 231.596.999 kr., Trésmiðja Þráins E. Gíslasonar ehf: 248.213.283 kr., E. Sigurðsson ehf:…Lesa meira

true

Heldri félaga deild Björgunarsveitarinnar Brákar stofnuð

Í gær var haldinn kaffifundur í heimkynnum Björgunarsveitarinnar Brákar þar sem stofnuð var heldri félaga deild sveitarinnar. Markmið fundarins var að fá björgunarsveitarfólk sem er komið á aldur eða komið í önnur verkefni, til að hittast í spjalli. Segja sögur og vera með í verkefnum sem Brák tekur sér fyrir hendur. Í samtali við Vigdísi…Lesa meira

true

Vigdís Häsler hætt störfum hjá Bændasamtökunum

Framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, Vigdís Häsler, hefur látið af störfum. Vigdís hefur sinnt starfinu síðastliðin þrjú ár en hún segist skilja stolt við starfið. Frá þessu greinir Vigdís í færslu á Facebook-síðu sinni. Vigdís segir starfið hafa verið skemmtilegt og gefandi og hún hafi komið að mörgum krefjandi verkefnum, stórum sem smáum. „Samtökin standa núna styrkum…Lesa meira

true

Kári vann stórsigur á Uppsveitum í Mjólkurbikarnum

Fullt af leikjum fóru fram í fyrstu umferð Mjólkurbikars karla í knattspyrnu um helgina og þrjú lið af af Vesturlandi voru í eldlínunni. Kári komst í aðra umferð en Skallagrímur og Reynir Hellissandi eru úr leik þetta árið. Káramenn sem leika í 3. deild fóru létt með fimmtu deildar lið Uppsveita í Akraneshöllinni á laugardaginn.…Lesa meira

true

Deildarmyrkvi á sólu sýnilegur í dag ef veður leyfir

Í dag, mánudaginn 8. apríl, sést deildarmyrkvi á sólu frá Íslandi öllu, ef veður leyfir. Frá Reykjavík sést allur myrkvinn en frá Austurlandi sest sólin á meðan hann stendur yfir. Tunglið hylur um og yfir 40% af sólinni frá Íslandi séð en í Mexíkó, Bandaríkjunum og Kanada verður almyrkvi. Til að sjá deildarmyrkvann þarf að…Lesa meira

true

Háskólar geta nú boðið upp á viðurkennt örnám

Frumvarp um breytingar á lögum um háskóla sem snúa að örnámi og prófgráðum úr diplóma- og viðbótarnámi var samþykkt á Alþingi fyrir páska. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Örnám í formi viðurkenndra námseininga Áform um þetta voru fyrst kynnt í lok árs 2023. Hingað til hefur örnám ekki verið sérstaklega nefnt í lögum…Lesa meira