Fréttir

true

Ruslið og angistin

Talsvert hefur verið fjallað um umhverfismál á síðum Skessuhorns í gegnum tíðina og einn þáttur í þeim er flokkun sorps. Sveitarfélög á Vesturlandi eru í óða önn að taka fjórðu flokkunartunnuna í notkun undir lífrænan úrgang. Um leið er gert ráð fyrir að gler, málmar, spilliefni og fleira verði skilað á gámastöðvar. Flokkunin á uppleið…Lesa meira

true

Þór hafði sigur á Skallagrími í spennuleik

Skallagrímur og Þór Akureyri áttust við í leik tvö í úrslitakeppni fyrstu deildar karla í körfuknattleik í gærkvöldi og var leikurinn í Fjósinu í Borgarnesi. Skallagrímsmenn gerðu góða ferð norður síðasta laugardag þar sem þeir unnu sigur í fyrsta leik og gátu því með sigri í gærkvöldi komið sér í ansi góða stöðu en þrjá…Lesa meira

true

Skipulagsfræðingur telur Hvassahraun úr sögunni og vill varaflugvöll í Borgarfjörð

Trausti Valsson, skipulagsfræðingur og prófessor emeritus við Háskóla Íslands hefur kortlagt náttúruvá á Íslandi og telur rétt að nýr varaflugvöllur verði í Borgarfirði. Þar sé mun minni hætta á hamförum en á suðvesturhorni landsins. Áform um varaflugvöll í Hvassahrauni eru enn til skoðunar, en árið 2019 var niðurstaða starfshóps sú að það væri einn vænlegasti…Lesa meira

true

Hinrik Örn Bjarnason ráðinn framkvæmdastjóri Eðalfangs

Hinrik Örn Bjarnason hefur verið ráðinn í starf framkvæmdastjóra Eðalfangs ehf. Um er að ræða nýtt stöðugildi innan samstæðu Eðalfangs, en Hinrik var áður framkvæmdastjóri N1 ehf. Hinrik hóf störf þann 2. apríl síðastliðinn en þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. Eðalfang er móðurfélag matvælafyrirtækjanna Norðanfisks ehf. á Akranesi og Eðalfisks ehf. í Borgarnesi.…Lesa meira

true

Einar Örn og Bjarki Þór stóðu sig vel

Bikarmótin í bekkpressu með búnaði og í klassískum kraftlyftingum fóru fram um helgina í íþróttahúsinu Digranesi. Kraftlyftingafélag Akraness átti þar tvo keppendur. Einar Örn Guðnason varð bikarmeistari í bekkpressu með búnaði. Einar keppti í -120 kg opnum flokki karla og lyfti seríunni: 230 kg – 237,5 kg og 250 kg. Lyfturnar voru allar mjög léttar…Lesa meira

true

Anna Þorvaldsdóttir hlýtur verðlaunin Chanel Next

Anna Þorvaldsdóttir tónskáld hefur hlotið merk verðlaun Chanel tískurisans fyrir framlag sitt til lista; Chanel Next. Anna er meðal virtustu tónskálda heims á sviði sígildrar nútímatónlistar. Hún hefur hlotið fjölda alþjóðlegra viðurkenninga á undanförnum árum auk þess sem verk hennar eru eftirsótt og leikin af merkum hljómsveitum víða um heim. Anna segir í færslu á…Lesa meira

true

Handbók um siðareglur ráðherra gefin út

Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra. Handbókin var samin af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni forsætisráðuneytis og í samvinnu við ráðuneytið. Í handbókinni eru settar fram ýmsar skýringar í siðareglum ráðherra ásamt raunhæfum dæmum um túlkun þeirra. Markmið með handbókinni er að veita ráðherrum leiðbeiningar um efni siðareglanna til að styðja við siðferðilega…Lesa meira

true

Slökkvilið landsins sinntu 683 útköllum á fyrsta ársfjórðungi 2024

Alls sinntu slökkvilið landsins 683 útköllum á fyrsta ársfjórðungi 2024, en 31 útkall var vegna elds sem grunur er á að hafi orðið til vegna íkveikju. Þetta er á meðal þess sem kemur fram í útkallsskýrslugrunni slökkviliða, sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur unnið tölfræðiupplýsingar úr, fyrir fyrsta ársfjórðung 2024. Slökkvilið landsins sinna fjölbreyttum og krefjandi…Lesa meira

true

Hleðslugarður Orku náttúrunnar við Digranesgötu í Borgarnesi

Á fundi skipulags- og byggingarnefndar Borgarbyggðar sem fór fram þann síðasta föstudag kom fram að Orka náttúrunnar ráðgerir að setja upp hleðsluinnviði fyrir rafbíla við Digranesgötu 4C í Borgarnesi. Svæðið verður upplýst og settar verða upp sjö hleðslustöðvar auk annars búnaðar í samræmi við verklýsingu. Gert er ráð fyrir að verktaki geti hafið vinnu við…Lesa meira