Fréttir

true

Leita að 15-18 ára sæskrímslum

Sirkushópurinn Hringleikur frá Reykjavík leitar að ungmennum 15-18 ára til að taka þátt í götuleikhússýningunni Sæskrímslin þegar verkið verður flutt á Akranesi þriðjudaginn 4. júní klukkan 17:15. Þetta kemur fram á vef Akraneskaupstaðar og þar segir: „Ert þú 15-18 ára og hefur áhuga á götuleikhúsi, sirkus og framkomu? Viltu taka þátt í stærsta götuleikhúsviðburði landsins?“…Lesa meira

true

Umferðin í landshlutanum gekk vel yfir páskana

Í liðinni viku voru höfð afskipti af 44 ökumönnum vegna of hraðs aksturs í umdæmi Lögreglunnar á Vesturlandi. Jafnframt voru brot níu ökumanna mynduð með færanlegri hraðamyndavél. Einn ökumaður er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Fram kemur í dagbók lögreglu að mikil umferð hafi verið í páskavikunni en heilt yfir gekk hún vel. Ökumaður…Lesa meira

true

Guðrún Karítas bætti Íslandsmetið í sleggjukasti í smá stund

Guðrún Karítas Hallgrímsdóttir frá Vatnshömrum í Borgarfirði keppti í sleggjukasti á Bobcat Invitational í Texas, bandarísku háskólamóti, á laugardaginn síðasta. Guðrún kastaði sleggjunni lengst 69,76 metra og sló þá Íslandsmet Elísabetar Rutar Rúnarsdóttur en fyrra metið var 69,11 metrar. Íslandsmetið stóð þó ekki lengi því Elísabet Rut svaraði með kasti upp á 70,33 metra og…Lesa meira

true

Luku páskamótinu í gær

Á öðrum degi páska lauk þriggja kvölda páskamóti hjá Bridgefélagi Borgarfjarðar í Logalandi. Það fyrirkomulag var viðhaft að besti árangur tveggja kvölda gilti til úrslita. Það hefur þann ótvíræða kost að menn geta eygt verðlaunasæti þrátt fyrir eitt slakt kvöld. Röð efstu para skýrðist ekki fyrr en undir blálokin. Þeir Guðmundur Ólafsson og Sveinbjörn Eyjólfsson…Lesa meira

true

Skagamenn fengu silfrið í Lengjubikarnum

Breiðablik og ÍA áttust við í úrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu á miðvikudag fyrir páska og var leikurinn á Kópavogsvelli. Kristófer Ingi Kristinsson kom Blikum yfir á 23. mínútu með skallamarki en Marko Vardic jafnaði metin fyrir ÍA með þrumuskoti fyrir utan teig sex mínútum fyrir hálfleik. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson skoraði síðan snyrtilegt mark fyrir…Lesa meira

true

Tekist á fyrir dómi um land og aðgang að því

Í héraðsdómi Vesturlands var 22. mars síðastliðinn kveðinn upp dómur í landamerkjadeilu eigenda tveggja jarða í Stafholtstungum í Borgarfirði en jarðirnar liggja sitthvorum megin við Norðurá. Stefnendur í málinu eru núverandi eigendur jarðarinnar Svarfhóls, þau Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir sem keyptu jörðina árið 2021. Stefndu þau H.J. Sveinssyni ehf., þinglýstum eiganda jarðarinnar Sólheimatungu.…Lesa meira

true

Dregið hefur úr norðan hvassviðri og vorið er handan við hornið

Heldur hefur dregið úr norðan páskahretinu og engar gular viðvaranir eru í boði Veðurstofunnar nú á öðrum páskadegi. Það verður norðaustan 10-18 m/s og él, en léttskýjað hér sunnan- og vestanlands. Snjókoma um tíma norðaustantil í kvöld og nótt. Svo verður austan- og norðaustan 8-15 m/sek í fyrramálið, en hægari síðdegis. Víða léttskýjað, en skýjað…Lesa meira

true

Vegagyðjan verður reist við Búðardal í dag

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr á árinu auglýsti Dalabyggð eftir tillögu að verki við innkomuna í Búðardal. Kallað var eftir frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Það var samstarfshópur Dalabyggðar, Vegagerðarinnar og SSV sem sá um umsjón verkefnisins, útboð og val á verki. Alls bárust fimm tillögur um…Lesa meira

true

Nói Síríus selur páskaegg á hálfvirði

Páskaeggjaframleiðandinn Nói Síríus hefur tekið tekið þá ákvörðun að selja öll páskaegg sem verða enn eftir í verslunum um allt land nú eftir páska með 50% afslætti. Tilboðin hefjast í dag í þeim verslunum sem eru opnar og gilda meðan birgðir endast. Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs hjá Nóa Síríus, segir að vanalega endurvinni…Lesa meira