Fréttir

true

Skagamenn fengu silfrið í Lengjubikarnum

Breiðablik og ÍA áttust við í úrslitum Lengjubikars karla í knattspyrnu á miðvikudag fyrir páska og var leikurinn á Kópavogsvelli. Kristófer Ingi Kristinsson kom Blikum yfir á 23. mínútu með skallamarki en Marko Vardic jafnaði metin fyrir ÍA með þrumuskoti fyrir utan teig sex mínútum fyrir hálfleik. Fyrirliðinn Höskuldur Gunnlaugsson skoraði síðan snyrtilegt mark fyrir…Lesa meira

true

Tekist á fyrir dómi um land og aðgang að því

Í héraðsdómi Vesturlands var 22. mars síðastliðinn kveðinn upp dómur í landamerkjadeilu eigenda tveggja jarða í Stafholtstungum í Borgarfirði en jarðirnar liggja sitthvorum megin við Norðurá. Stefnendur í málinu eru núverandi eigendur jarðarinnar Svarfhóls, þau Arnaldur Jón Gunnarsson og Unnur Karlsdóttir sem keyptu jörðina árið 2021. Stefndu þau H.J. Sveinssyni ehf., þinglýstum eiganda jarðarinnar Sólheimatungu.…Lesa meira

true

Dregið hefur úr norðan hvassviðri og vorið er handan við hornið

Heldur hefur dregið úr norðan páskahretinu og engar gular viðvaranir eru í boði Veðurstofunnar nú á öðrum páskadegi. Það verður norðaustan 10-18 m/s og él, en léttskýjað hér sunnan- og vestanlands. Snjókoma um tíma norðaustantil í kvöld og nótt. Svo verður austan- og norðaustan 8-15 m/sek í fyrramálið, en hægari síðdegis. Víða léttskýjað, en skýjað…Lesa meira

true

Vegagyðjan verður reist við Búðardal í dag

Eins og fram kom í frétt Skessuhorns fyrr á árinu auglýsti Dalabyggð eftir tillögu að verki við innkomuna í Búðardal. Kallað var eftir frumhönnun á aðkomutákni sem býður fólk velkomið í þéttbýliskjarnann Búðardal. Það var samstarfshópur Dalabyggðar, Vegagerðarinnar og SSV sem sá um umsjón verkefnisins, útboð og val á verki. Alls bárust fimm tillögur um…Lesa meira

true

Nói Síríus selur páskaegg á hálfvirði

Páskaeggjaframleiðandinn Nói Síríus hefur tekið tekið þá ákvörðun að selja öll páskaegg sem verða enn eftir í verslunum um allt land nú eftir páska með 50% afslætti. Tilboðin hefjast í dag í þeim verslunum sem eru opnar og gilda meðan birgðir endast. Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs hjá Nóa Síríus, segir að vanalega endurvinni…Lesa meira

true

Margir í vandræðum á fjallvegum fyrir norðan

Björgunarsveitir í Húnavatnssýslum og Skagafirði hafa staðið í ströngu í dag við að aðstoða ferðalanga yfir og niður af Vatnsskarði og út Langadal. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að mikil hálka er efst í Bólstaðahlíðarbrekku og hafa bílar fokið þar til. Í einhverjum tilvika hafa bílstjórar ekki treyst sér til að keyra áfram og…Lesa meira

true

Gleðilega páska!

Hefð hefur myndast í Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum að unga út páskaungum í smíðastofunni rétt fyrir páska. Þetta hefur vakið mikla lukku meðal nemenda og starfsfólks og er stöðugur straumur að athuga með eggin og síðar ungana. Viðeigandi er að þessir hænsnaungar eru af svokölluðu páskahænsnakyni, en nánar er sagt frá slíkum pútum í Skessuhorni…Lesa meira

true

Síðasta mót Vesturlandsdeildarinnar verður á miðvikudaginn

Nú styttist í síðasta mót Vesturlandsdeildarinnar í hestaíþróttum á þessum vetri. Miðvikudaginn 3. apríl verður keppt í tölti T1 og skeiði í gegn um Faxaborg. „Mótið hefst kl. 18 og leikur enginn vafi á að þarna koma til með að sjást frábærar töltsýningar og góðir skeiðsprettir. Grunur leikur á því að villikettir eigi eftir að…Lesa meira

true

Páskahret á páskadegi

Á norðanverðu landinu, frá utnanverðum Skagafirði og austur á firði, er útlit fyrir hríðarveður frá hádegi í dag og fram á kvöld. Skafrenningur verður og lítið skyggni. Á veginum við Hafnarfjall og á Kjalarnesi verður hvasst í norðaustanátt í dag, en Vegagerðin bendir á að vindhraði í hviðum gætu farið í allt að 30-35 m/s…Lesa meira