Margir í vandræðum á fjallvegum fyrir norðan

Björgunarsveitir í Húnavatnssýslum og Skagafirði hafa staðið í ströngu í dag við að aðstoða ferðalanga yfir og niður af Vatnsskarði og út Langadal. Í tilkynningu frá Landsbjörgu kemur fram að mikil hálka er efst í Bólstaðahlíðarbrekku og hafa bílar fokið þar til. Í einhverjum tilvika hafa bílstjórar ekki treyst sér til að keyra áfram og hefur björgunarfólk keyrt suma bíla niður. Safnað er saman í hópakstur og bílum fylgt niður beggja vegna Vatnsskarðs.

Björgunarsveitin á Dalvík fór fyrr í dag til aðstoðar fólki sem var á ferð um Árskógsstrandarveg. Talsverður fjöldi ökumanna var í vandræðum þar og eitthvert tjón varð á ökutækjum þegar þau rákust saman. Aðgerðum þar er að mestu lokið en enn er verið að fylgja ferðalöngum niður af Vatnsskarði bæði austan og vestan megin.

Eins og stendur er þar ekkert ferðaveður og fólk hvatt til að bíða með ferðalög milli landshluta fyrir norðan. Meðfylgjandi eru myndir frá Landsbjörgu af bílalest sem verið er að fylgja niður af Vatnsskarði, en björgunarsveitir eru nú að fylgja hátt í 200 bíla lest niður Langadal til Blönduóss.

Margir í vandræðum á fjallvegum fyrir norðan - Skessuhorn