
Páskahret á páskadegi
Á norðanverðu landinu, frá utnanverðum Skagafirði og austur á firði, er útlit fyrir hríðarveður frá hádegi í dag og fram á kvöld. Skafrenningur verður og lítið skyggni. Á veginum við Hafnarfjall og á Kjalarnesi verður hvasst í norðaustanátt í dag, en Vegagerðin bendir á að vindhraði í hviðum gætu farið í allt að 30-35 m/s síðdegis.