
Bilun kom upp í nokkrum kælum Kjörbúðarinnar í Grundarfirði síðustu nótt. Töluvert magn af matvælum lá því undir skemmdum í morgun og var brugðið á það ráð að auglýsa kælivörur gefins. Sett var tilkynning á samfélagsmiðla Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar og brugðust íbúar vel við því. Hvert bílastæði var upptekið við Kjörbúðina þegar mest gekk á.…Lesa meira








