
Bílaumboðið Askja mun í byrjun apríl opna sölu- og þjónustuumboð á Innnesvegi 1 á Akranesi. Viktor Elvar Viktorsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri Öskju á Vesturlandi. Þar verður sala nýrra og notaðra bíla ásamt einfaldri verkstæðis- og hjólbarðaþjónustu. Húsið er vel þekkt þar sem Bílver rak þar sölu- og þjónustuumboð fyrir Honda um árabil og bifreiðaverkstæði.…Lesa meira








