Fréttir

true

Bjarki með besta árangur íslensku kylfinganna

Kylfingurinn Bjarki Pétursson úr Borgarnesi var ásamt fjórum öðrum íslensku kylfingum á GolfStar Winter Series – Links mótinu, sem fram fór á Empordá vellinum á Spáni, dagana 16.-18. febrúar. Mótið er á Nordic Golf League atvinnumótaröðinni – sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Alls tóku 148 keppendur þátt í mótinu…Lesa meira

true

Bæjarstjóri telur framgöngu ríkisins óásættanlega

„Í raun er verið að sóa fjármunum hins opinbera sem væru betur nýttir annars staðar“ Í kröfu fjármála- og efnahagsráðherra í eyjar og sker úti fyrir strandlengjunni, fyrir hönd íslenska ríkisins, sem byggir á greinargerð óbyggðanefndar er meðal annars gerð krafa um að Súgandisey, Landey og aðrar eyjur Sveitarfélagsins Stykkishólms falli í skaut ríkissjóðs. Blaðamaður…Lesa meira

true

Innkalla skinku vegna listeriu

Matvælastofnun varar neytendur við tveimur framleiðslulotum af Stjörnugrís skinku 80 og brauðskinku vegna þess að það greinist Listeria monocytogenis. Fyrirtækið hefur í samráði við Matvælastofnun innkallað vörurnar. Innköllunin á eingöngu við eftirfarandi framleiðslulotur: Vöruheiti: Stjörnugrís skinka 80. Framleiðandi: Stjörnugrís. Best fyrir 18.03.2024. Lotunúmer: 60022-4032. Dreifing: Allar helstu matvöruverslanir.Lesa meira

true

Lára Lind ráðin í nýtt starf hjá Grundarfjarðarbæ

Í desember síðastliðnum auglýsti Grundarfjarðarbær nýtt starf forstöðumanns bókasafns og menningarmála. Fram kemur á vef bæjarins að bæjarstjórn hafi nú ráðið Láru Lind Jakobsdóttur í starfið. Forstöðumaður hefur umsjón með starfsemi almenningsbókasafns og menningarhúsa; þ.e. samkomuhúss og Sögumiðstöðvar, en ætlunin er að byggja upp fjölbreyttan stuðning og þjónustu við íbúa, ekki síst nýja íbúa, með…Lesa meira

true

Keppni í pönnukökubakstri aftur komin á dagskrá á Landsmóti 50+

Fulltrúar UMFÍ, ungmennafélagsins Þróttar Vogum og sveitarfélagsins Voga skrifuðu um miðja síðustu viku undir samning um Landsmót UMFÍ 50+ sem haldið verður í Vogum í sumar. Boðið verður upp á klassískar greinar; pönnukökubakstur, brennó og margt fleira. Búist er við fjölmennasta mótinu frá upphafi, samkvæmt frétt á vef UMFÍ. „Við erum búin að ákveða keppnisgreinar…Lesa meira

true

Ferðafélag Borgarfjarðar á göngu um Akranes

Laugardaginn 17. febrúar síðastliðinn var boðið upp á tæplega ellefu km göngu undir leiðsögn Rögnvaldar Gíslasonar um Akranes. Gengið var í ljúfu veðri, eins og vaninn er á Akranesi, en örlítill vindur heilsaði upp á þátttakendur við Akranesvita.Lesa meira

true

Fimm gull og eitt silfur í hús hjá BA

Unglingamót Aftureldingar í badminton var haldið í Íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ um síðustu helgi. Keppt var í einliðaleik, tvíliðaleik og tvenndarleik í flokki A og B í U13, U15, U17 og U19. Badmintonfélag Akraness sendi nokkra keppendur á mótið og stóðu þeir sig mjög vel, afraksturinn í lok móts var alls fimm gull og…Lesa meira

true

Þjóðskrá er stofnun ársins

Þjóðskrá varð í fyrsta sæti í flokki meðalstórra stofnana í Stofnun ársins 2023. Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu tilkynnti um valið á Stofnun ársins 2023 fimmtudaginn 15. febrúar síðastliðinn. Stofnun ársins er samstarfsverkefni Sameykis, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar og fjölmargra annarra stofnana og nær til tæplega 40.000 einstaklinga á vinnumarkaði. Í könnuninni eru þátttakendur spurðir út…Lesa meira

true

ÍA býður upp á sálfræðiþjónustu

Sálfræðistofa Reykjavíkur (SR) og Íþróttabandalag Akraness ÍA skrifuðu undir samning í síðustu viku þess efnis að SR muni veita íþróttafólki og þjálfurum aðildarfélaga ÍA sálfræðiþjónustu sem verður að fullu greidd af ÍA. Í tilkynningu frá ÍA kemur fram að fjögur föst sálfræðiviðtöl muni standa íþróttafólki og þjálfurum ÍA til boða en það er margsannað að…Lesa meira

true

Ráðherra dregur í land með eyjamálið

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir fjármálaráðherra skrifar grein á visir.is í dag þar sem hún upplýsir að hún hafi farið þess á leit við óbyggðanefnd að hún endurskoði afstöðu sína í þjóðlendumálinu sem verið hefur til umfjöllunar undanfarna viku. Þórdís skrifar að að ríkið ætli ekki að sölsa undir sig eyjar landsins, heldur sé markmiðið að…Lesa meira