Fréttir

true

Erlendur Samúelsson er Borgnesingur ársins

Á Borgarnesblótinu síðastliðið laugardagskvöld í Hjálmakletti í Borgarnesi var tilkynnt um hver væri útnefndur Borgnesingur ársins 2023. Er þetta í sjötta sinn sem staðið er að þessari útnefningu á Borgarnesblóti. Áður hafa Ingimundur Ingimundarson, Þorsteinn Eyþórsson, Guðrún Birna Haraldsdóttir, Guðrún Daníelsdóttir og Eiður Sigurðsson hlotnast þessi heiður. Að þessu sinni er Erlendur Samúelsson Borgnesingur ársins.…Lesa meira

true

Mannvit er nú COWI

Í dag breytir Mannvit nafni sínu og starfar að öllu leyti undir vörumerki COWI sem er leiðandi ráðgjafarfyrirtæki á Norðurlöndunum á sviði verkfræði, orku, arkitektúrs og umhverfismála. „Nýtt vörumerki er hluti af sameiningarferli Mannvits við COWI-samstæðuna sem er næsta skref til vaxtar og aukinnar þjónustu okkar á Íslandi,“ segir í tilkynningu. Nafn fyrirtækisins í fyrirtækjaskrá…Lesa meira

true

Má bjóða þér bollu?

Það var lítið slakað á í Sögumiðstöðinni í Grundarfirði í gær þegar Félag eldri borgara var með árlega bollusölu í aðdraganda bolludagsins í dag. Það var óhemju mikið magn af gómsætum bollum sem runnu í gegn hjá vöskum félagsmönnum en bollusalan er stór hluti af fjáröflun félagsins. Þær Hjördís Bjarnadóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Sigríður Gísladóttir og…Lesa meira

true

Stofnuðu Félag eldri borgara í Hvalfjarðarsveit

Stofnfundur Félags eldri borgara í Hvalfjarðarsveit, FEBHV, var haldinn sunnudaginn 11. febrúar í Miðgarði. Að fundinum stóðu fulltrúar eldri borgara í Öldungaráði Hvalfjarðarsveitar; þau Anna G. Torfadóttir, Áskell Þórisson og Jóhanna G. Harðardóttir sem unnið hafa undirbúningsvinnu að stofnun þess og m.a. sótt um aðild til Landssambands eldri borgara; LEB. Á fundinum voru samþykkt lög…Lesa meira

true

Ingimundur fagnaði afmæli sínu í góðra vina hópi

Borgnesingurinn og íþróttakennarinn Ingimundur Ingimundarson fagnaði 80 ára afmæli á laugardaginn. Veisla var haldin í sal í stúkunni hjá Breiðabliki í Kópavogi. Þar var margt um manninn og heilmikið húllumhæ. Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ, kom í afmælið, flutti stutta tölu um afrek Ingimundar í gegnum tíðina og afhenti honum áritaðan skjöld í tilefni dagsins.…Lesa meira

true

Leggja til samráð allra sveitarfélaga gegn ofbeldi

Fyrir sveitarstjórnum á Vesturlandi liggur nú til afgreiðslu tillaga Lögreglustjórans á Vesturlandi um svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og afbrotum í landshlutanum. „Lögreglustjórinn á Vesturlandi vill í samvinnu við Ríkislögreglustjóra hefja svæðisbundið samráð gegn ofbeldi og öðrum afbrotum á Vesturlandi í því skyni að auka öryggi og öryggistilfinningu íbúanna og tryggja þjónustu fyrir þolendur ofbeldis á…Lesa meira

true

Fjölmenni perlar í dag í FVA – myndasyrpa

Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Lokavika átaksins er nú í gangi og Kraftur heldur áfram að selja „Lífið er núna“ armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. Kraftur, í samstarfi við TeamTinna og Krabbameinsfélags Akraness og nágrennis, perlar í dag…Lesa meira

true

Anna Fanney var kosin Idolstjarna ársins

Úrslitaþátturinn í Idol keppninni fór fram á föstudagskvöldið og var sýndur í beinni útsendingu á Stöð 2. Spennan var mikil fyrir úrslitakvöldið enda þrír afar frambærilegir keppendur að heyja úrslitaviðureign sína. Tveir af þeim voru frá Vesturlandi; þau Björgvin Þór Þórarinsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir, en auk þeirra Anna Fanney Kristinsdóttir. Þema þáttarins var „Þetta…Lesa meira

true

Vesturlandsdeildin fer af stað á þriðjudaginn

Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum og fer fram í Faxaborg í Borgarnesi. Deildin hefst með keppni í fjórgangi næstkomandi miðvikudag, 14. febrúar. Guðmar Þór Pétursson stóð efstur í einstaklingskeppninni í fyrra með 47 stig en lið Uppsteypu sigraði í liðakeppni. Guðmar Þór er á meðal keppenda í ár og gæti því varið titil…Lesa meira

true

Frumvarp um uppkaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík aðgengilegt á Samráðsgátt

Frumvarp um uppkaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í Grindavík var kynnt í ríkisstjórn í gærmorgun og lagt í samráðsgátt síðar um daginn. Ríkissjóður mun nú bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarður króna. Frumvarpið verður lagt…Lesa meira