Fréttir

true

Vesturlandsdeildin fer af stað á þriðjudaginn

Vesturlandsdeildin er einstaklings- og liðakeppni í hestaíþróttum og fer fram í Faxaborg í Borgarnesi. Deildin hefst með keppni í fjórgangi næstkomandi miðvikudag, 14. febrúar. Guðmar Þór Pétursson stóð efstur í einstaklingskeppninni í fyrra með 47 stig en lið Uppsteypu sigraði í liðakeppni. Guðmar Þór er á meðal keppenda í ár og gæti því varið titil…Lesa meira

true

Frumvarp um uppkaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík aðgengilegt á Samráðsgátt

Frumvarp um uppkaup ríkissjóðs á íbúðarhúsnæði í Grindavík var kynnt í ríkisstjórn í gærmorgun og lagt í samráðsgátt síðar um daginn. Ríkissjóður mun nú bjóðast til að kaupa íbúðarhúsnæði í eigu einstaklinga í Grindavík og taka yfir þau íbúðalán sem á því hvíla. Umfang aðgerðarinnar er metið allt að 61 milljarður króna. Frumvarpið verður lagt…Lesa meira

true

Gönguskíðabraut við golfvöllinn í Grundarfirði

Í samvinnu Golfklúbbsins Vestarrs og Grundarfjarðarbæjar, með aðstoð Björgunarsveitarinnar Klakks, er búið að ryðja gönguskíðabraut (spor) í einstöku umhverfi Bárarvallar. Fram kemur á vef bæjarins að tvær leiðir voru lagðar á völlinn, önnur leiðin er 1,5 km löng fyrir lengra komna og hin er 0,5 km löng og léttari. Það voru þeir Mateusz Moniuszko, Símon…Lesa meira

true

Perlað verður á Akranesi á sunnudaginn og í Borgarnesi á þriðjudaginn

Fjáröflunar- og árvekniátak Krafts, stuðningsfélags fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, stendur nú yfir. Lokavika átaksins er nú gengin í garð og Kraftur heldur áfram að selja „Lífið er núna“ armbönd sem eru perluð af sjálfboðaliðum víða um land. „Við erum búin að fara hringinn í kringum landið með perluviðburði á…Lesa meira

true

Bilun í neyðarsíma 112 – önnur númer tiltæk

Símkerfi Neyðarlínunnar er bilað og netspjallið er óvirkt. Nái fólk ekki inn í gegnum símanúmerið 112 er fólki bent á símanúmerin 864–0112, 849–5320 og 831–1644. Vakin er athygli á því að fólk á aðeins að hringja í þessi númer í ítrustu neyð.Lesa meira

true

Úrslitaþáttur Idolsins í kvöld – Lagið Skýjaborgir komið á Spotify

Þetta er að skella á! Ný Idolstjarna Íslands verður krýnd í kvöld í Idolhöllinni að Fossaleyni í Gufunesi í beinni útsendingu á Stöð 2. Anna Fanney Kristinsdóttir, Björgvin Þór Þórarinsson og Jóna Margrét Guðmundsdóttir standa þrjú eftir og keppast um að verða næsta Idol stjarna Íslands. Þema þáttarins verður „Þetta er ég“ og mun hver…Lesa meira

true

Kynna tillögur að frumhönnun gamla bæjarhlutans í Borgarnesi

Tillögur að frumhönnun á svæðinu frá Skallagrímsgarði að Brákarsundi hafa verið birtar. Þær sýna hvernig þróa mætti gamla bæjarhlutann í Borgarnesi með torgum og almenningsrýmum. Tillögurnar, sem unnar voru af þverfaglegu teymi arkitekta, skipulagsfræðinga, sagnfræðinga og ráðgjafa í umhverfissálfræði á vegum Alternance slf, voru nýverið kynntar fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar og eru nú opnar almenningi á…Lesa meira

true

Skagamenn með sigur í fyrsta leik í Lengjubikarnum

ÍA og Afturelding áttust við í A deild karla í Lengjubikarnum í knattspyrnu í gærkvöldi og var leikurinn í Akraneshöllinni. Viktor Jónsson kom Skagamönnum yfir á 15. mínútu og tveimur mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks skoraði Slóveninn Marko Vardic annað mark ÍA í leiknum en Marko gekk til liðs við Skagamenn frá Grindavík eftir síðasta…Lesa meira

true

Hratt dregur úr virkni eldgossins

Dregið hefur verulega úr gosóróa síðan í gær en það byrjaði að draga úr honum upp úr hádegi í gær þegar virkni á gossprungunni minnkaði einnig. Tímabundnar hækkanir sáust á gosóróa í gærkvöldi en samhliða því jókst virkni í gígunum. Í nótt dró enn frekar úr virkni gossins en milli kl. 7 og 8 í…Lesa meira

true

Baski með námskeið í Stúkuhúsinu

Myndlistarmaðurinn Baski, Bjarni Skúli Ketilsson, sem býr í Hollandi er þessa dagana staddur í sínum gamla heimabæ Akranesi og heldur myndlistarnámskeið í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið í Görðum. Námskeiðinu lýkur í lok næstu viku en þetta er sextánda árið sem Baski heldur þetta námskeið. Hefur hann haft aðstöðu fyrir það á ýmsum stöðum í gegnum tíðina…Lesa meira